Sumarblaðið - 20.04.1916, Blaðsíða 4

Sumarblaðið - 20.04.1916, Blaðsíða 4
2 SUMAEBLA&I& Þar sem loftið er eins og dýrustu veigar. Hún býður þeim út á drifhvíta sanda, þar sem spegilsléttur sjórinn bíður eftir að vagga þeim i faðmi sér. En mennirnir eru komnir svo langt frá náttúrunni, að þeir þekkjast ekki boð hennar. Þeir taka upp klútana og þurka af sér svitann: »Þetta er meiri blessaður hitinn!« Húsbyggingarsjóöur Íþróttaíélags Reykjavíkur. Eins og kunnugt er, hefir fram á þenna dag verið mjög tilfinnanlegur skortur á íþróttahúsi hér í bænum. Aðeins tveir af öllum skólum bæjarins hafa leikfimishús. Auk þess sem hús þessi eru langt frá því, að vera svo fullkomin sem skyldi, þá hlýtur það ætíð að verða komið undir vel- vild þeirra, sem skólunum stjórna, hvort aðrir, sem iþróttir vilja iðka, geta feng- ið að æfa sig í þessum húsum. Eftir þvi sem skólarnir stækka, minka líkurnar fyrir því, að svo geti orðið framvegis. íþróttafélag Reykjavíkur hefir lengi hugsað sér að nauðsyn bæri til, að koma hér upp góðu íþróttahúsi, handa sér og Öðrum, sem iþróttir vilja iðka. Uppdrátt- ur hefir þegar verið gerður að slíku húsi. Á fundi i í. R. 25. nóv. 1915 var samþykt að stofna sjóð í þeim tilgangi, að koma upp húsinu. Er tilætlast að mynda sjóð- inn með frjálsum framlögum manna, og auka hann svo og efla á hverskonar hátt með því markmiði að koma húsinu upp sem fyrst. Hér er um að ræða mikilsvert mál og væntir félagið góðra undirtekta hjá öllum þeim, sem íþróttum unna. Æflngareglur. Marlcmið íþróttaiðkana er að gera líkam- ann sterkan og þolgóðan. Leilcfími er undirstaða allra íþrótta. Menn eiga að bera sig vel við allar íþrótt- ir. Sogið brjóst hvelfdar herð- ar og dottandi höfuð, á aldrei að sjást með íþróttamönnum. 1. Æfðu þig aldrei þegar þú ert ekki vel heill eða þreyttur eftir vinnu. 2. Láttu læknir skoða þig áður en þú byrjar að æfa þig, hafirðu einhvern tíma verið alvarlega veikur. 3. Soi'ðu i hreinu lofti, að minsta kosti 8 tíma á sólarhring. 4. Borðaðu góðan og auðmeltan mat. Borðaðu með hægð og tygðu fæðuna vel. Vertu aldrei of mettur. Borðaðu ekki strax eftir þreytandi æfingar. 5. Farðu oft í bað en vertu ekki lengi í senn í heitu eða köldu vatni. 6. Neyttu hverki áfengis né tóbaks. 7. Reyndu að draga andann djúpt við allar æfingar. Eftir þreytandi æfing- ar þá dragðu andann djúpt nokkrum sinnum svo sem eina mínútu. 8. Æfðu þig ekki þegar þú ert svangur eða of mettur. 9. í fyrstunni eiga æfingarnar að vera auðveldar, en þyngjast smátt og smátt. 10. Varastu að láta þér verða kalt. Vertu aldrei kyr þegar þú ert sveittur eftir æfingu. 11. Drektu lítið þegar þú ert að æfingum og þá að eins smá sopa í hvert skifti. Betra að drekka því oftar ef heitt er. 12. Drektu aldrei ískaldan drykk. 13. Eftir æfingar eiga menn að fá sér kalt bað, ef þess er kostur, annars er gott að nudda sig með grófu hand- klæði. 14. Æfðu þig skynsamlega. Sértu þrek- aður (hafirðu æft þig um of) þá verð- urðu að hætta um stundarsakir, þang- að til þú hefir náð þér alveg aftur.

x

Sumarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumarblaðið
https://timarit.is/publication/535

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.