Sumarblaðið - 20.04.1916, Blaðsíða 12

Sumarblaðið - 20.04.1916, Blaðsíða 12
6 SUMARBLAÐW Þeir sem ekki geta farið út úr bænum nema á sunnudögum, ættu að fara var- lega í fyrstu og hjóla ekki meira en svo sem 20—30 rastir fyrstu skiftin, en smá- lengja vegalengdina eftir því sem þeir venjast. »Menn eiga aldrei að hjóla svo hart, að þeim flnnist þeir ekki geta hjólað harðara«. Þegar langa leið á að fara verða menn að varast að taka á öllum sínum þrótti í fyrsta sprettinum. Þegar vindur blæs á móti, verður að spara kraftana. Oráð er að hjóla upp brattar brekkur. Það verður til tafar eftir því sem lengur dregur. Klæðnaðurinn verður að vera hagkvæm- ur og heitur. Það er lítið vit í því að fara fáklæddur af stað, þótt heitt sé. Mönnum gerir ekkert til hvort þeir svitna meira eða minna. En þeim getur hæg- lega orðið alvarlega kalt, ef þeir stanza einhversstaðar og eru illa klæddir. Bezt er að liafa ullarföt inst klæða og léttan jakka yzt, sem hægt er að bregða í bak- töskuna ef mjög heitt er. Ef svo ber við að menn taki sér bað á miðri leið, verða þeir að athuga að vera okki lengi í vatninu, eigi þeir eftir langan veg ófarinn. Föt sín eiga þeir að breiða móti sólinni meðan þeir eru í baðinu. Hjólreiðar auka mjög matarlystina, en komi það fyrir, að menn finni ekki til sultar eftir langa ferð, þá er það merki þess, að þeir hafa ofreynt sig. Þá verða þeir að hægja á sér og stytta dagleiðina. Mun þá brátt verða breyting á, svo að þeir l'á lystina. Það er mjög misráðið að hafa með sér áfenga drykki í hjólreiðaferðum. Það er margreynt, að þeir sem »styrkja« sig á áfengjum drykkjum á miðri leið verða þróttminni og óþolnari en þeir, sem ekki smakka það í ferðinni. Yið þorsta er ágætt að blanda saman mjólk og sódavatni. Þegar heitt er ættu menn að drekka eins lítið og þeir geta. Bezt er að venja sig á að skola innan munninn og kverkarnar og drekka ekki nema nokkra dropa í senn. Hjólhestarnir þuri'a að vera eins vand- aðir og kostur er á. Það kemur að vísu meira við pyngjuna í svipinn lieldur en ef keyptur væri ódýr hjólhestur, en það sparar margar krónur þegar á líður. Þeir sem heldur vilja ferðast á hjól- hesti en gangandi, ættu ekki að láta neinn dag ónotaðan þegar góð færð er og gott veður. Það styrkir lieilsu þeirra og þeir fá margt fagurt að sjá, sem opin hafa augun á slíkum ferðum. Lögmál heilsunnar. Lög heilsunnar eru fá, einföld og auð- lærð. Hver maður er fær um að breyta eftir þeim ef hann vill. Engi veit hvað átt lieflr fyrr en mist hefir. Þegar heilsan hefir snúið við mönnum bakinu, þá berja þeir sér á brjóst og ávíta sjálfa sig fyrir að hafa ekki gert það, sem þurfti til þess að halda henni við. Þessi óskráðu lög hljóða svo: Hreint loft. Vinna. Böð. Iþróttir. Þeir sem þessu fylgja verða hraustir, ánægðir og langlífir í landinu. Maðurinn er eins og jurt, sem ekki get- ur lifað án lofts og sólar. Hann getur ver- ið án fæðu í 40 daga, en hann getur ekki með góðu móti verið án lofts í 40 sek, og sé hann fjórar mínútur án lofts er líf hans ekki túskildings virði. Dragið andann djúpt (í gegnum nefið), þegar þið komið út i hreint loft. Loftið er það lífsmeðal sem hver getur notað eftir vild og engi þarf að kaupa. Temjið ykkur jafnan andardrátt. Það gerir blóðrásina reglulega. Reiðist ekki, það er ekki samboðið skyn- sömum mönnum. Það gerir líka andar- dráttinn óreglulegan, raskar ró ykkar og gerir því lífið skemmra cn ella. Farið oft í bað. Það gerir húðina sterlca og ókulvísa. Auk hinnar daglegu vinnu þá hafið ætíð eitthvað til skemtunar, svo sem göngur, knattleika, hlaup, sund, bækur. Lesið ætíð eitthvað á hverjum degi í góðri bók. Notið meðöl náttúrunnar og engi önnur. Starfið á daginn. Hvílið ykkur á næt- urnar.

x

Sumarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumarblaðið
https://timarit.is/publication/535

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.