Sumarblaðið - 20.04.1916, Blaðsíða 14
8
SUMaRBLA&IB-
og skynsamlega mynduð. Mun honum
mest þökk á, að menn leggi niður gömlu
orðin og noti hin nýju í staðinn.
Hér koma þá nokkur af þessum nýju
orðum:
Gömlu orðin Nýju orðin
Centra Miðja hnöttinn
Kixa Skeika
Drop kicking Dettispyrna
Grounder Vallspyrna
Longpassing Langspyrna
Off-side Rangstæður
On-side Réttstæður
Gera mark Skora mark
Straffespark Vítaspyrna
Fríspark Aukaspyrna
Innkast Innvarp
0 verhead-kickin g Skessuspyrna.
Brot.
Allir vilja hraustir vera og ánægðir, en
fáir vilja nokkuð fyrir þvi hafa. Menn
ætlast til að guð sjái fyrir þvi, eins og
öðru fleiru.
* *
Menn hugsa um hunda og hesta, en ekki
um sína eigin heilsu. Þeir hugsa ekki
um líkamann, heldur klæðnaðinn. Þeir
hugsa ekki um að vitkast, en vilja sýnast
vitrir.
tf *i*
*
»Maður veit hvað heilsan kostar þegar
hún er farin«, segja þeir, sem verða að
leita á náðir læknanna. Menn kunna ekki
að meta heilsuna fyrr en þeir hafa mist
hana.
H:
*
Þegar fólkið hefir fengið sér falskar
tennur, fcr það fyrst að nota tannbursta.
<i>
»Við lifum eins og hinir, sem fara I bað
á hverjum degi«, segja þeir, sem baða sig
einu sinni á ári, eða koma jafnvel aldrei
i vatn alla æfina. Já, þið lifið. En þið
þekkið ekki muninn á ykkar lífi og hinna.
*
*
F y r s t á að kenna börnunum heilsu-
i'ræði, s v o á að kenna þeim kristin fræði.
Z.
Verðlaun.
Iþróttasamband Islands hefir nýlega
veitt þremur félögum verðlaun fyrir áhuga
og dugnað. Þessi félög eru:
Iþróttafélag Reykjavíkur,
Knattspyrnufélagið »Víkingur« og
íþróttafélagið »Hörður« í Fáskrúðsfirði.
Úti-íþróttir
byrja hjá íþróttafélagi Reykjavíkur strax
eftir páska. Æfingar verða að minsta
kosti tvisvar í viku. Þeir menn sem ekki
eru i félaginu en vildu taka þátt í æfing-
um þessum, ættu að gefa sig fram við rit-
ara félagsins, hr. Einar Pétursson, Hafn-
arstræti 16.
Leikreglur í. S. f.
Allir þeir, sem íþróttir iðka, ættu að
eignast leikreglur þær, sem lþróttasamband
íslands gaf út i fyrra. Þar eru allar hin-
ar gildandi reglur um íþróttir, scm hverj-
um íþróttamanni er nauðsyn á að vita.
Bókin kostar 50 aura og fæst i bókaverzl-
unum.
Gjaldkeri í. R.,
Otto Björnsson, hefir tekið sér ættarnafn
og kallar sig hér eftir Otto Bj. Arnar, og
er nafn þetta staðfest af stjórnarráðinu.
ísafold — Reykjavik 1916