Sumarblaðið - 17.06.1917, Page 14
8
SUMARBLAÐIÐ
yar þvi þegar gerð tilraun til að fá sér
leikvöll annarstaðar. Þótti það hvergi
tiltækilegt nema á Melunum. Voru því
ráðnir til nokkrir tugir drengja til að
ryðja þar hæfilega stóran leikvöll til
þess að félagið gæti sem fyrst tekið til
starfa. En eigi leið á löngu áður en
gjaldkeri gerir meðstjórnendum sínum
viðvart um það, að nú sé sjóður félags-
ins uppetinn, hver eyrir kominn í Mel-
ana; og ekki að eins það, heldur sé fé-
lagið komið í talsverða skuld við sig
eða verzlun þá, er hann veitti forstöðu.
Nú fór að vandast málið. Stjórnin þurfti
að finna eitthvert ráð til að safna fé,
eigi að eins til að borga áfallna skuld,
heldur líka, og það miklu meira, til að
halda áfram leikvallargerðinni og ljúka
við hana; hún var sem sé hvergi nærri
hálfnuð. Hve lengi stjórnin hefirleitað
að ráðinu veit eg eigi, en hún varð að
gefast upp án þess að finna það ogþar
með var félagið úr sögunni án þess að
hafa tekið til starfa sem slíkt. Mér vitan-
lega var aldrei byrjað á neinum leik
né sporti.
Síðan er þetta gerðist eru nú liðin
rúm 20 ár og á þeim árum hefir margt
og mikið gerst, einmitt í sömu áttina og
Sportsfélagið sáluga átti að starfa. Með-
al annars hefir öflugt og áhugamikið
íþróttafélag 'verið stofnað hér, Iþrótta-
félag Reykjavíkur, sem í eru á þriðja
hundrað meðlimir, yngri og eldri. Þá
hefir og verið stofnað íþróttasamband
Reykjavíkur og íþróttasamband Islands
(í. S. í.), sem hefir það hlutverk með
höndum: »að styðja af megni íþróttir
og fimleika, er horfa til efiingar líkam-
legrar og andlegrar orku hinnar íslenzku
þjóðarc. Þá er ennfremur hugsjónin
um leikvöll á Melunum komin í fram-
kvæmd. Stór og vel girtur leikvöllur
er þar kominn, sem sagt er að kostað
hafi um 14000 kr. 0g þó að hann eigi
það sameiginlegt við mennina, að vera
eigi eins góður og hann ætti að vera,
þá er hann þó óspart notaður á voriri
og fram á sumar af knattspyrnufélögum
bæjarins, en þau eru nú orðin eigi færri
en 10, og þó von um fleiri, því að ný-
lega hafir sést auglýsing í blöðunum,
þar sem nokkrar ungar stúllcur skora á
stallsystur sinar að gangast fyrir því
með sér, að stofna til slíks félágsskapar.
Hrói.
Knattspyrnumót.
Hin árlegu knattspyrnumót fara nú
að hefjast.
Knattspyrnumót Islands byrjar þ. 20.
þ. m. Keppendur eru knattspyrnufé-
lögin »Fram«, »Reykjavíkur« og »Val-
ur«. Gripurinn sem kept er um er silf-
urbikar, og er nú í höndum »Frams«.
Knattspyrnumót Reykjavíkur hefst þ.
2. júlí n. k. Keppendur munu verða
þeir sömu og á Islandsmótinu. Gripur-
inn er horn og er knattspyrnufél. Reykja-
víkur handhafinn.
Útiæfingar
Íþróttaíélags Reykjavíkur
er ákveðið að verði á íþróttavelJinum
á mánudögum og fimtudögum kl. 8—9
e. h.
Æfingarnar verða í eins mörgum
íþróttagreinum og kostur er á.
Aætlað er að íþróttamót, samskonar
og 1911 og 1914, verði haldið hér í
sumar. Mun þar verða tækifæri fyrir
frækna íþróttamenn að keppa, kemur
það sér því vel að útiæfingar I. R. eru
ekki bundnar við félaga úr I. R.,
heldur getur hver og einn tekið þátt í
þeim.
Abyrgðarmaður: Páll Einanson.
Isafoldarprentsmiðja — 1917.