Varðeldar - 01.01.1930, Blaðsíða 8

Varðeldar - 01.01.1930, Blaðsíða 8
6 VARÐELDAR hefði það verið ægilega lieiftarlcgt og ásakandi. .... Enn þá sest elgurinn við og við. I fyrra lokkaði liann pilt einn út á veik- an ís og slapp pilturinn nauðulega í land. Hann hafði kvalið rjúpu, er hann veiddi í snöru. .. En aldrei hefi jeg heyrt að elgurinn hafi leitað hefnda við heiðarlega veiðimenn. Nú segir Austlendingurinn sögur af kynjadýrum og svo tekur Sunnlendingur- inn við og er ekki sjerlega dauflegur. Röddin verður lieit og rík af blæbrigðum, og svipurinn breytist eftir efni sagnanna. Loks varð jeg að segja sögur af skelja- skrýmsli, sem búendur í Arnarfirði sáu, er þeir lágu fyrir tófu á mánabjörtum vetr- arkvöldum. Jeg reyni að gera fjelögum minum grein fyrir landslaginu, hrika- svörtum hamrabeltum, brattri hlíð, með skriðum og sköflum — og mjórri fjöru og vindgáruðum firði. Bak við stein í fjör- unni liggur skyttan, gægist og hlustar og væntir tófunnar. Máninn varpar fölvu skini á frosinn sandinn, svartar klappir og rauðbrúnt þang. Ský dregur fyrir tunglið — og busl og skrölt heyrist í flæð- armálinu. Máninn siglir fram undan skýj- unum, og dýr eitt á stærð við stærstu liesta fnæsir sjónum úr nösunum, skek- ur sig harkalega, svo að glamrai’ í skelj- ungnum, hvessir maurildandi glyrnurnar og skálmar á land. . . .. Jeg lýk við sögur mínar — og við sitjum hljóðir. Við finnum allir, að sög- urnar sem við höfum sagt eru að minsta kosti i vissum skilningi sannar. Þær eru sönn tákn þeirra álirifa, er náttúruöfl- in hafa á þá, sem vjelar eða tölur liafa ekki svift næmustu og nautnarikustu hæfileikum skynfæranna. Og þá er jeg nú sit hugsandi finst mjer það vera eitt af velferðarmálum mannanna, að um leið og hver njóti sem fullkomnastrar fræðslu um alt, er vjelgengi þessara tima krefur af hverjum og einum, þá gefist öllum kostur á að njóta við og við hinna frjófg- andi og vekjandi áhrifa heiða og skóga, fjalla og stranda, er mannshönd og menn- ing liafa eigi breytt eða svift hinum dul- arfullu en máttugu töfrum sínum. Þau áhrif eru andleg laug og voldug vernd gegn andlegri stirnun, einhæfni og óeðli, sem menningin virðist að öðrum þræði liafa í för með sjer. . . Upp úr náttmálum tókum við á okk- ur náðir. Jeg og Sunnlendingurinn sváf- um sinn á hvorum bekk, en okkur til mik- illar undrunar tók Austlendinguriiín hvílupoka, er var í skáp í anddyrinu. Svo kastaði liann öðrum vetling sínum hjá liundinum, sem ætlaði að stökkva upp — og varð seppi þá rólegur. Síðan hauð Austlendingurinn góða nótt og fór út. . . Við sem inni sváfum vöknuðum um birtingu um morguninn. Við klæddum okkur, kveiktum eld á arni og fórum út. Nú var tekið að vinda, og skafrenningur- inn hvirflaðist um heiðina. Á hæð skamt frá kofanum stóð Austlendingurinn graf- kyr á skíðum sínum og studdi hökunni á stafinn. Mjöllin rauk um hann — og þarna var liann eins og tákn hinnar heil- brigðu, þróttmiklu og framsæknu æsku, sem ekki stígur inn í krána eða danssal- inn í frístundum sínum, heldur sækir sjer fjör og heilhrigði til fjalla. Guðm. Gíslason Hagalín.

x

Varðeldar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Varðeldar
https://timarit.is/publication/539

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.