Ægir - 01.10.1906, Qupperneq 11
Æ G I R.
39
hækkuð upp í 54 kr. (60 sh.); enn fremur
voru veitt verkmannaverðlaun, verðlaun
til fiskimannanna sjálfra fyrir vöruvöncl-
un, dugnað o. fl., o. fl., sem oflangt yrði
hér upp að telja.
Hér sjer maður þjóð, sem var samtaka
og hafði vel þroskaðan skilning á því,
sem gera þurfti til eflingar atvinnuvegun-
um. Það voru ekki einungis einstakling-
arnir, fiskimenn og iðnaðarmenn, sem
sáu hér opnast nýja vegi til bjargráða,
heldur og stjórniu og forgöngumenn
þjóðarinnar. Þetta óviðjafnanlega þrek
og þol, sem sýnir sig' í þessu sem öðru
hjá Bretum, hefur gjört þá óvinnandi, og
gjört þá að sigurvegurum hvar sem þeir
liafa komið. Og' þó hefur maður áþreif-
anlega sönnun fyrir því, að þessi harátta
hefur kostað þá 72 mil. kr. (4 mill. £)
af fé einstaklinga og 54 mill. kr. (3 mill.
£) úr ríkissjóði, í öll þau ár, sem þeir
þurftu til að ná takmarkinu, sem þeir
stefndu að. (Framh.).
Mótor í íshafsveiðiskip og íshafsbáta.
(Eftir Norsk Fiskeritidende).
Á skipabyggingarstöðinni í Tromsö
stendur kúttari 90 smálestir að stærð og
er eign konsúls Rohertsons í Hammerfest.
í hann er verið að setja lítinn »A/p/ta«-
mótor, og verður þetta skip því hið fyrsta
íshafsskip að undanskilinni »Gjöa«, sem
verður knúið áfram með mótor.
Áætlað er, að hann hreyfi skipið áfram
með 4 mílna hraða í vöku, sem er álit-
ið nægileg ferð í logni, þegar skipið að
eins þarf að hreyfa sig i ísnum til að
ná í veiði og hefir ekki gagn af seglunum.
Annar skipstjóri, Brekens, hefir það
öðruvísi; hann hefir látið byggja sér lit-
inn veiðibát á sömu byggingarstöð og
setur i hann l1/* hest »A/p/ta«-mótor.
Bátur þessi hefir alt að 7 mílna hraða
og ætlar hann að nota hann sem skot-
bát á seli og önnur ishafsdýr, og enn-
fremur til að draga skipið á milli jak-
anna.
Fiskiveiðastjórn Norðmanna hefir veitt
13 fiskimönnum styrk íyrir árið 1906—
’07 til að kynna sér ýmislegt verklegt
viðvikjandi fiskiveiðunum. Upphæðstyrks-
ins til hvers er frá 100—250 kr.
»Norsk Fiskeritidende« segja »að
styrkurinn sé einkum ætlaður mönnum
til að fara utanlands sérstaklega til Eng-
lands og Danmerkur, og taka þátt í og
kynna sér fiskiveiðar þessara landa, notk-
un mótora og snyrpinóta. Ennfremur
til að íerðast innanlands og kynna sér
tilhögun með fiskiveiðar á hinum ýmsu
fjarlægu stöðum«.
Styrkurinn sem veittur er í þessum
um tilgangi er alls 3000 kr.
Eftir síðustu fréttum er sagt, að góður
afli hafi verið um langan tíma á Húsa-
vík fyrir norðan. Sömuleiðis við ísa-
fjarðardjúp.
Síldarafli hefir verið við ísafjarðardjúp
nú í haust; litill þilbátur, sem þeir eiga
þar og' stundað hefir síldveiði, hafði
fiskað 160 tunnur á skömmum tíma.
Heyrst lieflr, að nokkrir menn hér i
bænum hafi hundist félagsskap til að
kaupa botnvörpuskip. Og mun Hjalti
Jónsson skipstjóri vera aðal-maðurinn i
fyrirtæKÍnu, og á hann að sjá um kaup
eða byggingu á skipinu í Englandi, og
hafa skipstjórnina á hendi eftirleiðis.
Þorskafli var góður fyrir Austfjörðum
í lok fyrri mán. og hyrjun þessa.