Ægir - 01.07.1912, Page 8
84
ÆGIR.
Síld..........................tunnur 123,393
Lýsi.......................... — 20,011
Hvallýsi...................... — 21,048
Fiskútílutningur liefir því þetta ár oröiö meiri
en nokkru §inni áður eða á 10. miljón punda
fram yfir það sem hann var árið áður sam-
kvæmt skýrslu í síðasta blaði. Vonandi er að
nýtt hámark komi á hverju ári, svo sem það
hefir gert nú síðustu 3 ár i röð.
Lögreglustjóri
á Siglufirði er nú Vigfús Einarsson hæjar-
fógetafulltrúi, eins og í fyrra, á meðan síldar-
veiðarnar standa yfir, frá því seinni part júlí
og út septembermánuð.
Heiradallur
hefir verið hjer það sem af er júlímánuði i
stað »Fálkans« sem nú er við Grænland. Verð-
ur Heimdallur lijer að sögn fram í ágúsl er
Fálkinn kemur aftur. Höfuðsmaður á Heim-
dalli er Iv o n o w en næstráðandi G a d sem
var skipstjóri á Ceres fyrir nokkru.
Herinaim Stcfánsson
skipstjóri drukknaði á höfninni á Seyðisfirði
21. júní. Hafði verið á sundi til lands úr mó-
torbát er lá þar, en sökk snögglega og var þó
vel syndur að sögn. Hann var uppeldissonur
Jóns alþm. í Múla og aðeins 24 ára gamall.
Aflalítið
var á Austfjörðum er siðast fréttist. »Austri«
segir lítið róið sökum beituleysis.
Erlendis.
ísgeyrasla
á fæðutegundum frá ári til árs er ekki svo
gömul meðal mentaþjóðanna. En menn vita
nú að Kinverjar hafa geymt ávexti á þennan
hátt og byrjað á því fyrir mörgum öldum. ís-
hús þeirra eru djúpir kjallarar og ávextirnir
látnir i körfum niður i stór leirkeröld með ís-
lagi á botninum og llókafóðruðu loki yfir. Hald-
ast þeir þá til næsta árs óskemdir.
Vélarbátav
i Skotlandi voru 75 árið 1909, 156 árið 1910
og 233 árið 1911 og verðmæti þeirra til samans
94,470 pd. sterl.
Mótorskipið Fionia
af sömu gerð og S e 1 a n d i a (sjá 3. bl. Ægis
V.) var selt »H a m 1) u r g-A m e r i k a-línunni«
strax er það var komið á llot. Pjóðverjum
fanst mikið lil um skipið og var það skýrt upp
og kallað Kristján X. til beiðurs við Dani.
Selandia
er nú heim komin til Kaupmannahafnar úr
austurför sinni og hafði allstaðar vakið geysi-
mikla athygli þar sem hún fór, því að fólkið
var því óvant að sjá svo stórt skiþ án segla og
reykháfs. Skipið hafði reynst fyrirtaks-vel i
þessari ferð, og segja lilöðin að nú sjeu um
20 skip af líkri gerð í smíðum í ýmsum lönd-
um álfunnar.
Loftskeytafæri
eru nýfarin að tíðkast í útlendum fiskiskip-
um. Vitum vjer til að hingað hafa komið í
sumar franskir botnvörpungar með slíkum
tækjum. Pýska tímaritið Der Fischerbote
hefur auglýsingar frá tveim fjelögum um að
setja loflskeytafæri í fiskiskip, og annað þeirra
segist þegar hafa sett slík læki í 7 skip. —
Skeyti gela þessi skip fengið liingað til lands
alla leið Irá Frakklandi og Fýskalandi, en ekki
munu þau geta s e n t skeyti nema fáar mílur
nema tækin verði því dýrari. Fyrir islensk
fiskiskip væru þessi tæki hið mesta þing, eins
og allir sjá. Hjer mundu skipin geta komið
skeytum heim til útgerðanna — á skotspónum
ef ekki beina leið. En til þess þurfa að vera
loftskeytastöðvar í landinu. Nú liggur fyrir
þinginu frumvarp um lieimild til að setja eina
á stoln hjer í Reykjavík.
Prentsmiðjan Gutcnberg.