Ægir - 01.02.1926, Side 14
34
ÆGIR
nefndin sérstaklega á í þessu efni, að
leggja þurfi hið bráðasta síma til vitanna
á Reykjanesi (er margoft hefir verið sam-
þykt á Fiskiþinginu), Siglunesi og Dala-
tanga.
Um viðvarps- og miðunarstöðvar.
Nefndin er þeirrar skoðunar, að víðvarp
muni i framtíðinni hafa mjög mikla þýð-
ingu í björgunarmálinu. Nú er í ráði að
reisa fullkomna víðvarpsstöð í Reykjavík,
er geti haft samband við menn hvarvetna
um land á fullkominn og öruggan hátt.
Hugsun manna er að víðvarpstæki verði
sett í öll stærri fiskiskip landsins, og talað
sé i víðvarp þetta til fiskiflotans á á-
kveðnum tíma um veðurfar o. fl. Ottó B.
Arnar hefir tjáð nefndinni, að Víðvarps-
félagið hafi ákveðið að setja til reynslu
víðvarpsmóttökutæki i 4 vélbáta, sinn í
hverjum landsfjórðungi, til þess að fá ör-
ugga reynzlu um, hvort tæki þessi reynist
nothæf á fiskibáta landsins. Nefndin legg-
ur áherzlu á að þetta verði framkvæmt
og felur stjórn Fiskifélagsins að hafa vak-
andi auga á því að tilraun i þessa átt
verði gerð. Nefndin leggur til, að Fiski-
félagsstjórninni sé heimilað fé til að
styrkja menn til kaupa þessara víðvarps-
tækja, ef þörf gerist.
Um miðunarstöðvarnar hefir nefndina
skort fullkomnar upplýsingar. Greinir
menn einkum á um hvort hafa skuli átta-
vitastöðvarnar í landi, eða skipin hafi
sjálf slíkan útbúnað (sbr. bréf Ottó B.
Arnar til aðalfundarnefndarinnar), en hér
mun enginn maður verulega kunnugur út-
búnaði yfirleitt. Nefndin telur mjög þýð-
ingarmikið að slíkar stöðvar komist upp.
Gerir nefndin því að tillögu sinni, að
leitað verði álits sérfræðinga og rannsakað
hið bráðasta á hvern hátt miðunarstöðv-
um verði best fyrirkomið hér á landi.
Verði loftskeytastöð reist í þessu skyni,
leggur nefndin til að hún verði selt á
Vestfjörðum.
Nefndin leyfir sér að lokum að bera
fram eftirfarandi tillögu:
»Fiskiþingið skorar á stjórn Fiskifélagsins
að beita sér fgrir þvi af alefli, að björgun-
armálið komist í það horf, sem bent er á
i nefndaráliti þessu.
Fiskiþing íslands 19. febr. 1926.
Geir Sigurðsson, Kristján Jónsson,
form. ritari.
Herm. Porsteinsson. Jón E. Bergsveinsson.
Arni G. Póroddsson.
Pess skal getifl, sem gert er.
Fimtud. 11. febr. síðastl. reru flest
skip úr Járngerðarstaðasundi í Grindavík
snemma morguns; en brátt setti í veltu-
brim og skelti jafnframt yfir dimmri þoku,
svo að erfitt varð að sjá til miða. Nokk-
ur af skipunum sneru aftur á útleið, en 6
sem héldu áfram og komust í sátur, urðu
svo að snúa frá sundinu ófæru og leituðu
þrautalendingarinnar í Porkötlustaðanesi,
og gátu lent þar heilu og höldnu. En
þar sem fólki i Járngerðarstaðahverfi, hafði
borist fregn um að ófært væri lika wfyrir
austan nesið«, var símað til Sandgerðis
og beðið um aðstoð, því hæpið þótti, að
skipin mundu ná nokkuru landi. Brá þá
þegar við mótorbáturinn »Höfrungur« frá
Vestmannaeyjum og var kominn innundir
Járngerðarstaðavík eftir 3 klst., og hafði
þó tafist nokkuð vegna þokunnar. Sveim-
aði hann þar um til þess að huga að
skipunum, og fór ekki burtu fyrri en hann
hafði fengið merki úr landi um að öll
skipin væru lent.
Þegar síðar kom til þess, að bjóða borg-
i