Ægir - 01.11.1926, Síða 10
222
ÆGIR
eyjafiskur, sem þegar er búið að kaupa,
og meðan svo er, hlýtur hann að gera sitt
til að halda verðinu niðri. Og í annan stað
er það, að búast má við að ef ekki tekst
að selja hitt, sem óselt er í Færeyjum nú,
þá muni sá fiskur fyr eða síðar verða
sendur á markaðinn í umboðssölu og get-
ur það orðið jafnvel enn hættulegra. Yfir-
leitt getur mikið oltið á því, hvernig þess-
um fiski verður disponerað, ef einhver ráð
væru til að varna því, að hann yrði sendur
í umboðssölu eða seldur fvrir lágt verð,
væri mikið unnið, og þá ef til vill von um,
að úr fari að rakna um verð á islenskum
fiski.
Valencia: Þangað er nú farinn að ber-
ast fyrir nokkru fyrsti nýi fiskurinn frá
Labrador, og er þegar komið talsvert af
honum á markaðinn og kvað mikið vera
væntanlegt til viðbótar á næstunni. Mark-
aðsverð fyrir þennan nýverkaða fisk hefir
verið alt upp í 70 pes. pr. 50 kg., enda er
sagt að sá fiskurinn, sem kominn er frá
Labrador, hafi verið óvenjulega fallegur
og góð vara. A sama tíma hefir nýr íslensk-
ur Labrador style („Islandicta") verið
seldur á ca. 64 pes., og er það nýtt, að
verðið sé lægra á „Islandicta" en á egta
Labrador. En öllum fréttum ber saman
um, að aflabrögðin þar vestra hafi verið
með lélegasta móti, og er sagt að exportörar
þar hugsi sér að heimta hátt verð í áx‘,
eða háa fyrirframgreiðslu, ef um umboðs-
sölu er að ræða, hver sem reyndin kann
nú að verða i því efni. Mér er ókunnugt
um livort þessi Labradorfiskur, sem kom-
inn er á markaðinn, hefir verið seldur i
umboðssölu, eða seldur í fastan reikning,
en nær er mér að halda, að hann muni
liafa verið seldur fast, eða svo er sagt að
sé uxn þann fisk, sem kominn er þaðan að
vestan til Alicante og er sagt að hann sé
kevptur fyrir 27/— til 28/— Shillings.
Þess er vert að geta, að sú nýlunda er orð-
in, að komið hefir verið á föstum gufu-
skipaferðum milli Newfoundlands og Mið-
jarðai’hafslandanna og er ætlast til að þeim
ferðunx verði haldið uppi með 4 skipum
að minsta kosti nú yfir haustmánuðina eða
eitthvað fram á veturinn. Mætti þetta verða
áminning fyrir okkur og víst hafa þeir New-
foundlandamenn ekki betri afstöðu eða
frekar ástæðu til að halda uppi slíkum
ferðum en við. Hér er þó sýnilega aðeins
um tilraun að ræða í þetta sinn, en það má
verða fróðlegt fyrir okkur að sjá, hvernig
þeim þykir slík tilraun gefast og hvað um
það kann að verða i fx-amtíðinni.
Genova: Sala hefir gengið þar mjög greið-
lega upp á síðkastið og eftirspurnin farið
vaxandi. Samt hefir markaðsverðið á La-
brador style ýfið lækkað í lírum og er nú,
þegar þetta er skrifað 400 líra pr. 100 kg. á
móts við 420 líra fyrir h. u. b. hálfum mán-
uði síðan. En á sama tima hefir gengi líra
hækkað enn talsvert og í enskri mynt svar-
ar því þetta verð, þó lægra sé i lírum h. u. b.
til þess sama og áður var, eða h. u. b. 29/—
cif. ágóðalaust.
Sama er að segja um fullverkaðan smá-
fisk. Verðið á honum hefir lækkað nokkuð
í lirum síðasta hálfan mánuðinn, var þá
komið upp í 465 líra, en er nú 450 líra pr.
100 kg. En vegna gengishækkunarinnar er
þó ekki uín raunverulega lækkun að ræða,
heldur jafnvel frekar hækkun. Þetta verð,
sem nú er á smáfiskinum mundi svara til
ca. 33/6 cif. ágóðalaust pr. 50 kg.
Portugal: Markaðurinn virðist vera á-
frainhaldandi álitlegur þar, eftir skýrslum
ræðismannanna að dæma, en þær skýrslur,
sem ég hefi í höndum frá þeim, ná ekki
lengra en til 25. f. m.
Til Lissabon hefir innflutningurinn* í
september verið kringum 3000 srnál., þar af
ca. 1900 frá Noregi, sein komu fyrst i mán-
uðinum, eins og getið er um i síðustu
skýrslu minni, og ca. 1000 smál. af portú-