Ægir - 01.11.1926, Side 20
232
ÆGIR
viðri á hverjum degi og grimdarfrost til
skams tíma. — En fullvissir þekjast menn
um, að mikil síld sé hér í firðinum, einung-
is að hún náist; það mundi bæta hag marg-
ra manna, sem nú hafa úr litlu að spila.
Eg hefi ekki lokið ferðalögum mínum
milli deildanna ennþá. Veldur því bæði sí-
feld ótíð og svo hitt, að menn hafa verið og
eru enn alment á fiskiflutningum hvenær
sem veður leyfir, og því ekki unt að ná
mönnum í verstöðvunum saman á fundi,
fyr en þeim önnum er lokið og allir komnir
í kyrð og næði. Eg geymi því næstu skýrslu
frásögn af ferðum mínum öllum i
heild, og sendi Fiskifélaginu þá um leið hin
venjulegu plögg og skýrslu við lok ársins.
Svalbarðseyri 6. nóv. 1926.
Páll Halldórsson.
Hvað stjörnufræðingar fræða oss um
Sólin „Vega“ í Lýrunni.
Þvermál hennar er 1,730,000 enskar mílur.
Hinn 3. júlí s. 1. var fjarlægð sólar okkar
frá jörðu 94,451,000 enskar mílur en um
nýjár 1. janúar 1927 verðum’ við jarðax'-
búar 3 milljónum mílna nær henni. Vega
er með björtustu stjörnum á norðurhveli
himinsins og eftir hinum nýjustu mæling-
um er hún 1,708,200 sinnum lengra burtu
• frá oss, en vor eigin sól, eða um 149,500,000
kílometrar X 1,708,200.
Sólin með öllum plánetunum stefnir á
Vega og nálgast hana. Er sá hraði 734,400
enskar mílur á hverjum sólarhring eða 13
mílur á sekúndu. En á sama tima er Vega,
með þeim stjörnum, sem henni tilheyra í
undanhaldi frá oss, en þó eigi með meiri
hraða en 4y2 milu á sekúndu, svo verði eng-
in breyting á ferðalagi því, fer svo að lok-
um að sólkerfi okkar nær sólkerfi Vega og
hvað þá'? Raunverulega nálgumst við því
Vega með 8% milu hraða á sekúndu.
Fyrir 13500 árum var Vega pólstjarna á
norðurhveli himins og um sama leyti var
hin mikla stjarna Canopus, suðurpól-
stjarna.
Eftir 12000 ár verða þessar sömu stjörn-
ur aftur pólstjörnur. Hitinn á yfirborði Vega
er rúmlega helmingi meiri en hiti á yfirborði
sólar og er hún því meðal hinna heitustu
stjarna. Helíum sólirnar í Orion eru heit-
astar allra sóla, eftir því sem menn þykj-
ast vita.
fsfiskssala.
Þessir togarar hafa landi undanfarið: selt afla sinn í Eng-
Jupiter 18./10. fyrir £ 1616
Ólafur l./ll. — £ 1190
Belgaum 19./10. — £ 2322
Skallagrímur 20./10. — £ 1779
Draupnir 11./10. — £ 828
Snorri goði 4./11. — £ 1016
Eiríkur rauði 19./10. — £ 1147
Leiknir 14./10. — £ 1860
— u./n. — £ 1080
Gyllir 22./10. — £ 2074
Þórólfur 25./10. — £ 1857
Gulltoppur 28./10. — £ 1311
Skúli 9./11. — £ 1310
Hávarður ísfirðingur 10./11. — £ 1066
Egill Skallagrímsson ll./ll. — £ 1300
£ 21.756
Áður birt frá siðara misseri 1926: £ 13.898
Samtals £ 35.654
Gengi 1 £ — 22.15 ísl. krónur.