Ægir - 01.11.1926, Page 22
234
ÆGIR
blöðum, að það væri hættugripur og er það
fremur kuldalegt gagnvart ættingjum,
vinum og venslamönnum þeirra, er á skip-
inu eru, að geta ekki beðið með þær sögur,
þangað til slys hefir orðið eða skipið er
komið fram, einkum þegar ekki er betur
fylgst með ferðum þessa „hættugrips“ en
svo, að blöð hér í bæ skýra frá hinn 27.
nóvember, „að skipið sé komið til Kaup-
mannahafnar fyrir 3—4 dögum og, að
ferðin hafi gengið vel“.
Skipið fór til eftirlits i „Flydedokken“
eins og aetlast var til frá upphafi.
Álit Ameríkumanna á ísl. fiski.
í injög merku amerísku tímariti „New-
foundland Trade Review“ frá 23. október
stóð eftirfarandi grein:
„Vertíðin hjá okkur er nú að enda og
sjómennirnir húnir að setja báta sína á
land, og eru að ganga frá öllu áður en vet-
urinn sest að. Þeir hafa undanfarandi ver-
ið mjög hepnir með veður, sem hefir mik-
ið að segja viðvíkjandi fiskverkunni, og
vér höfum séð mikið af fiski frá í ár, sem
sýnir að mjög hefir verið vandað til verk-
unarinnar, og' að fiskurinn er fallegri en
hann hefir verið í mörg ár.
Hinn mikli verðmunur, sem er á full-
þurkuðum fiski og hinum linþurkaða La-
bradorfiski, er þess valdandi að margir
gera hvað þeir geta til að vinna Newfound-
landsfiskinum það álit, sem hann áður
hafði meðan að hann skaraði fram úr öðr-
um fiski á heimsmarkaðinum. Okkur er
sagt, að íslendingar séu að auka fram-
leiðslu sína af linþurkuðum fiski, en
minka árlega framleiðslu sína af fullþurk-
uðum fiski, en þeir munu áður líður á
löngu finna út, að þeir eru þar á rangri
leið, því það er engin ástæða að vera að
fylla markaðinn af vöru, sem lítil eftir-
spurn er eftir, jafnvel með því óheyrilega
lága verði sem liskurinn er nú boðinn fyr-
ir, bæði á Spáni og Ítalíu. Margir eru á
þeirri skoðun, að verðið muni fara lengra
niður á Labradorfiski þegar fiskiflotinn
sem enn er úti kemur heim, en það hefir
heyrst að veiðin hjá þeim hafi verið treg,
og þar að auki muni þeir ætla að fullþurka
fisk sinn, til þess að fá hærra verð fyrir
hann, svo að þaðan er ekki að óttast mikið
framboð af linþurkuðum fiski sem lækki
verðið.
/í. B.
Opnir mótorbátar.
Grein sú, sem um báta þessa er á öðr-
um stað í þessu tbl „Ægis“ þykir sumum
ekki allskostar góð. Með því, sem þar er
bent á, þykir mönnum sér of mikill kostn-
aður gjör, hvað litreiðslu gámalla róðra-
báta snertir, sem setja á í mótora; flothylki
telja þeir taka of mikið rúm o. s. frv.
Við þessu er ekkert að segja og menn
eru að öllu leyti sjálfráðir í hverskonar
fleytur þeir láta mótora, en vilji þeir vá-
tryggja sig og skipverja sína, verða þeir
að frainleggja skoðunagjörð á bát. Hún
fæst aðeins með því móti að einhver af
skoðunarmönnum ríkisins hafi skoðað bát-
inn og telji hann í góðu standi til þess, sem
hann er ætlaður til. Séu mótorar settir í
opna báta eins og hverjum einum virðist
kostnaðarminst og án eftirlits, getur svo
farið eins og áður er á minnst, að skipa-
skoðunarmanni lítist ekki á búnað er hann
hefir framkvæmt skoðun og annað hvort
fyrirbýður að nota bátinn eða skipar að
taka úr honum mótorinn aftur og styrkja
eitt og annað. Þá fer innsetningin að verða
dýr.
Menn verða að hafa það hugfast, að hjá