Ægir - 01.11.1926, Side 24
236
ÆGIR
Aðalfundur
Fiskifjelags fslands
verður haldinn í Kaupþingsalnum í Eimskipafjelagshúsinu, laugardaginn
12. febrúar 1927.
Dagskrá:
Samkvæmt 6. gr. fjelagslaganna.
Stjórnin.
skipið Gullfoss 22 smálestum á sólarhring í
stað 16 af enskum kolum. Kol í Reykjavík
voru þanii dag 88 kr. smálest. P"rá því kola-
verkfallið byrjaði (1. maí) til 22. okt., hafa
aukin gjöld vegna kola, hjá Eimskipafé-
laginu orðið 117,400 krónur. Farmgjöld
standa þó enn óhreytt.
Skeyti frá fiskifulltrúanum á
Spáni.
Barcclonn 4. nóv. Birgðir 3—400 smá-
lestir; verð upp í 70 pes.
fíilbao: Birgðir 450 smálestir; verð upp
í 91 pes.
Gxcnova: Verð á Labradorstyle 380 líra,
tilsvarandi 31/6 cil'.
Barcelona 12. nóv. Birgðir 4—500 smá-
lestir; verð óbreytt.
fíilbao: Verð að komast upp í 105 pes. Ný-
kominn fiskur síðustu viku seldur 88 pes.
Birgðir taldar 300 smálestir. Norsk tilboð
sögð 62 pes. cif.
fíarcclona 18. nóv. Birgðir 2—300 smálest-
ir; verð upp í 72 pes.
fíilbao: Birgðir 200 smálestir; verð *ó-
hrevtt.
fíarcelona 26. nóv. Birgðir því nær upp-
gengnar; verð óbreytt.
fíarcclona 1. des.: l'isklaust.
fíilbao: Birgðir ís! færeyskur 600 smá-
lestir, verð 84—92 pes. Norskur 350 smá-
lestir, verð 77—85 pes.
„íslands Falk“.
Varðskipið „Island Falk“ sigldi á grunn
nálægt Melshöfða á Alptanesi. Stóð skipið
þar í nokkrar klukkustundir, stýri brotn-
aði og fleiri skemdir urðu; hefir H./f.
„Hamar“ gert við skipið hér i fjörunni og
er það ófarið út (27. nóv.) en mun bráð-
lega l'ara til Kaupmannahafnar til frek-
ari viðgerða.
Þann dag, sem skipið stóð á grunni var
heiðríkt og spegilsléttur sjór, var það hinn
5. nóv., en skömmu eftir að það losnaði
um kl. 2. e. h. hvesti á n. v. og um nóttina
var stórviðri.
Ritsljóri: Sveinbjörn Egilson.
Prentsmiöjan Gutenberg.