Ægir - 01.07.1929, Síða 5
ÆGIR
139
Aðalfundur
Eimskipafélags íslands.
Aðalfundur Eimskipafélagsins var
haldinn laugardaginn 23. júní í Kaup-
þingssalnum. Var fundurinn vel sóltur
og umræður miklar. Var þar eins og
vant er gerð grein fyrir starfsemi fé-
lagsins undanfarið ár og reikningar
lagðir fram. Hafði árið verið hagstætt
fyrir félagið og varð hagnaður rúmar
500 þús. kr. Varð hagnaður af rekstri
allra skipanna og skiftist liann þannig
niður: Goðafoss 217395 kr., Gullfoss
133176 kr., Brúarfoss 125760 kr., Sel-
foss 75705 kr. og Lagarfoss 47932 kr.
Til afskrifta á eignum félagsins var
varið 305703 kr. Eru þær nú bókfærðar
þannig: Gullfoss 240 þús. kr., Goðafoss
915 þús. kr., Brúarfoss 950 þús. kr.,
Lagarfoss 220 þús. kr., Selfoss 120 þús.
kr. og fasteignir 620 þús. kr. í varasjóð
voru lagðar 148025 kr. og hluthafar fá
4%. Stjórnendur fá í ómakslaun 4500
kr., endurskoðendur 3600 kr. og 26222
kr. yfirfærðar til næsta árs.
Samþykt var heimild fyrir stjórnina
að láta byggja eða kaupa eitt eða tvö
skip til viðbótar.
Samkvæmt félagslögum fór fram
stjórnarkosning. Cr stjórninni áttu að
ganga Halld. Þorsteinsson, Hallgrímur
Benediktsson og Pétur A. Ólafsson.
Voru tveir þeir fyrtöldu endurkosnir,
en i stað Péturs Ólafssonar var kosinn
Jón Ásbjörnsson hrm. Af hálfu Vestur-
tslendinga var endurkosinn Árni Egg-
ertsson.
Sú breyting verður á um næstu ára-
mót, að E. Nielsen lætur af fram-
kvæmdastjórn og fer þá burt héðan af
landi, en verður áfram hjá félaginu í
Khöfn. Hefir liann gengt framkvæmd-
arstjórastarfinu frá því félagið tók til
starfa og notið almennra vinsælda. Við
starfi lians hér tekur Ól. Benjamíns-
son kaupmaður.
Á fundinum flutti framkvæmdastjóri
E. Nielsen þessi kveðjuorð:
Háttvirta samkoma!
Með klökkum hug og hjarta kem ég
nú fram til að kveðja aðalfund Eim-
skipafélagsins, eftir næstum því 16 ára
framkvæmdarstjórastarf, eða frá 1.
apríl 1914.
Allar vélar, sem mikið starfa, hljóta
að slitna, en sá er munurinn á mönn-
um og vélum, að hægt er að setja ný
hjól í vélarnar, en slitið á mönnum
verður ekki bætt. Heyrnin hefir nú bil-
að mig, svo að ég get ekki lengur tekið
þátt í ráðstefnum, og álít mig því ekki
færan um að hafa á hendi fram-
kvæmdastjórn fyrir Eimskipafélag Is-
lands, sem hefir svo mikla þýðingu fyr-
ir þjóðina. Félagið liefir vaxið hrað-,
fara og er í blóma. Af eignum þess
hefir verið afskrifað stórum. Gullfoss
og Lagarfoss eru nú skuldlausir og
Goðafoss verður skuldlaus 1931. Brúar-
foss er kominn niður í 350 þús. kr. Sel-
foss mun á þessu ári vinna sér inn eft-
irstöðvar af kaupverði sinu. Og af hús-
inu .er þegar afskrifaður rúmlega helm-
ingur af byggingarkostnaði. — Virðist
því sem félagið megi bera góða von til
framtíðarinnar.
Með óblandinni gleði lít ég yfir þessi
síðast liðin 16 ár. Þetta hafa verið
heillaár fyrir félagið og það hafa verið
heillaár fyrir mig, hér á meðal hinnar
íslensku þjóðar.
Eg vil leyfa mér að færa aðalfundi
Eimskipafélagsins þakkir fyrir þann
velvilja, sem mér hefir ætíð verið sýnd-
ur. Og hjartanlegar þakkir vil ég færa
skrifstofustjórum félagsins fyrir það