Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1932, Síða 16

Ægir - 01.04.1932, Síða 16
102 ÆGIR Skýrsla yfir útfluttan ísfisk frá Austfjörðum með leiguskipum Skipaútgerðar ríkisins, haustið 1931. Þorskur kg- Ýsa kg' Tinda- skata kg. Stein- bítur kg. Lúöa kg. Koli bg- Kassar Seyðisfjörður . . . 85176 4032 1386 2961 507 4977 1573 Norðfjörður .... 169533 5544 126 819 63 38178 3401 Eskifjörður .... 140279 39296 3066 14976 2976 6397 3119 Fáskrúðsfjörður . 84609 65520 3087 10962 52 14742 2842 Samtals 479597 111392 7665 29718 3658 64294 10935 t Eskifjaröarskýrslunni er talinn einn bátur af Revöarfirði. Sala t íslenzkum krðnum 192590 00. vorið og sumarið. Svo áframhaldandi verðfall. Næst síldveiði. Um síldarverðið er mönnum svo kunnugt, að ljóst er, að síldarútgerðin var lilill gróðavegur. Síð- ast isfiskútflutningurinn um haustið sem gaf þá útkomu, að útgerðarmenn og sjó- menn fengu ekkí einn eyri fyrir afla sinn, eins og áður er sagt. Ástandið er þegar orðið svo, að til vandræða horfir. Um endurnýjun á fiski- bátum er tæpast að ræða, þegar útgerð- in er með slíkum hörmungum. Bátarn- ir sumir orðnir aflaga, en ekki fyrirsjá- anlegt að neilt komi í staðinn. Afkoma Austfirðinga er svo bundin við sjóinn, að veruleg skerðing eða rýrnun á út- veginum frá því, sem nú er, mundi valda neyð. Það er því ekki annað fyrirsjáanlegt en að hefjast verði handa til að sporna við að svo verði. En þá er spurningin : Hvað á að gera? Vilja lánsstofnanir og landstjórn ekki láta athuga hvort til- tækilegl mundi að gera út 3 — 4 togara frá Asturlandi ? Þótt nokkurn hluta skipshafnar yrði að fá frá Suðurlandi, i byrjun, þáerþað grunur minn, að ekki fáir menn myndu fást til þess — og jafnvel flytja búferlum, ef með þyrfti — þvi að húsaleigan í Reykjavík og vafasöm atvinna, er tæpast svo eftirsóknarverð, að ekki mundi marg- ur kjósa fremur örugga atvinnu úti á landi, — jafnvel þótt það væri á Aust- fjörðum. Eskifirði, 20. marz 1932. Friðrik Steinsson. Skip vantar. Ekkert hefur enn spurst til færeyska fiskiskipsins »Emanuel« frá Vági, sem seinast sásthjá Vestmannaeyjum 8. þ. m. Annars færeysks skips er lika saknað. Er það frá Vagi og heitir »Laura«. Seinast sást til þess fyrir 16—17 dögum og héldu menn þá, að það væri á heimleið. Um 20 manns eru á hvoru skipi.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.