Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1932, Page 4

Ægir - 01.07.1932, Page 4
158 ÆGI R 25 ára. Hinn fyrri ritsljóri »Ægis«, hr. Matthías Pórðarson, byrjar ritið á eftirfarandi orðum, sem eru hin fyrstu er par birtust og voru send til prentunar í prentsmiðjuna Gutenberg (sem pá var nýlega stofnuð), hinn 10. júlí 1905, og hefur pað siðan verið prentað par. »Velurinn 1899 sendum við ritstjóri Skapti Jósepsson á Seyðisfirði, boðsbréf út um landið að fiskiveiðariti, sem við böfðum í hyggju að gefa út, en af því undirtektirnar urðu daufar var hætt við fyrirtækið. í fyrravetur vakti ég máls áþviískip- stjórafélaginu »Aldan«, hve mikil nauð- syn bæri til að sjómenn og fiskimenn befðu slíkt rit og var því vel tekið; komst málið svo langt að kosin var þriggja manna nefnd, til að undirbúa þetta, fá upplýsingar um hvað útgáfan mundi kosta m. m. og semja við hr. adjunkt B. Sæmundsson um, að hann tæki við ritstjórninni, eða vildi að meira eða minna leyti styðja að útgáfunni. Hr. B. S. kvaðst hafa svo mikið annríki og ýmsar aðrar orsakir yllu þvi, að hann ekki gæti tekið slikt að sér, en lofaði að styrkja það að öðru leyti eftir föngum og eftir því sem hann hefði tima til. Ur útgáfu ritsins varð svo ekki í það skifti, og var þá á- kveðið að fresta því lil haustsins 1904. Sama haust fór ég til Noregs og þegar ég kom heim aftur, var málið við sama og hafði ekkert verið gert i þvi frekara. Af áhuga fyrir málefninu og fyrir á- skoranir einstakra manna kringum landið vil ég nú hyrja á fyrirtæki þessu, þar sem ég sé að þörfin fer sívaxandi, en engar líkur til að aðrir munu verða til þess, jafnframt þó mér sé ljóst hve vandasamt og ábyrgðarmikið það starf er, sem ég telcst á hendur. Ávarp til landsmanna. Jafnvel þótt rit þetta eigi aðallega að ræða þau málefni er varða sjómanna og fiskimannastétt landsins, þá viljum vér samt með línum þessum ávarpa alla landsmenn undantekningarlaust, þar sem það er vor skoðun, að velferð landsins er undir því komin að sjávarútvegur og siglingar jafnt sem búnaðarræktun taki sem mestum framförum. f*að mun eng- um dyljast að með auknum fiskiveiðum eykst verzlun og samgöngur, og þetta er eitt af aðalskilyrðunum fyrir velgengni allra landsmanna jafnt bænda sem sjó- manna. Landbúnaðurinn er aðalatvinnuvegur landsins, en til þess að hann geti þróast sem mest, þurfa fiskiveiðar landsmanna að eflast. Því með vaxandi sjómanna- stétt eykst markaður fyrir afurðir land- bóndans, jafnframt sem auður færistinn í landið og við það vex gjaldþol þjóðar- innar, svo hún verður færari um að bera þær byrðar, sem vaxandi menning legg- ur henni á herðar. Margir hafa endurtekið þau orð bæði fyrr og síðar, sem enskur ferðamaður hefur sagt: »að væru fiskiveiðarnar al- mennilega stundaðar þá gætu þær orðið ótæmandi auðsuppspretta fyrir landið«. Fiskigrunnin kringum landið eru að minnsta kosti um 1600 □ mílur og eins og gefur að skilja ættu þau að vera sem mest notuð af okkur sjálfum, þar sem við eigum margfallt betri aðstöðu hvað snertir nærveru þeirra, og við ættum að geta fært

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.