Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1932, Blaðsíða 20

Ægir - 01.07.1932, Blaðsíða 20
174 ÆGIR dóms og fyrir litlar sakir. Hefur Anzana tekið vel í kröfur Iíatalóníubúa um heimastjórn og er það talið að hafa slyrkt hann mjög. 1 blöðunum má lesa að órói sé á Spáni, en ekki er hann talinn alvarlegur hér. Yenjulega er stjórnin við öllu húin, en þó hún hafi herlið til taks, er því ekki beilt, enda fylgja verkamenn stjórninni víðast hvar að málum. En þessi óróa- kvittur mun nokkuð stafa af því, að verkföll eru nú leyfð, en voru hönnuð af einvaldsstjórninni. Hafa þau sízt orðið fleiri en annarsstaðar, en meira hefur borið á þeim, vegna þess, að símað hefur verið út um víða veröld, þó verkfall verði í einstökum bæ, og smá ryskingar og áílog i sambandi við það. Síðan stjórnin tók innanlandslán sitt, í apríl, hefur pesetinn hækkað töluvert. Var hækkunin all ör í fyrstu, en nú virðist vera húið að festa hann gagnvart Bandaríkja-dollar, svo að 12.15 pesetar fara i dollar; er pesetinn þá í rúmlega 42 gullcentimos, en tæpum 50 aurum íslenzkum. Talið er að hækkunin hafi dregið mikið fé til Spánar, sem lands- menn höfðu áður flutt til útlanda, svo Spánarbanki hafi fengið mikið fé milli handa, auk þeirra 500 milljóna peseta, sem lánið nam. Þó er gengið ekki frjálst, heldur ákveðið af nefnd, og Spánarbanki skammtar útlent fé. Þarf að senda um- sókn um það og verður að taka ná- kvæmlega fram til hvers féð er ætlað. Fæst afgreiðsla venjulega ekki fyrr en eftir tvær til þrjár vikur. Virðingarfyllst. Helgi P. Briem. Verzlunar- og siglingasamn- ingum við Noreg sagt upp. Opinberlega er tilkynnt, að á ráðstefnu sem forsætisráðherra íslands, Ásgeir Ás- geirsson, var á með nokkrum norsku ráðherrunum, hafi náðst samkomulag um að hefja samningaumleitanir um vöruverzlun milli líkjanna. Samninga- umleitanirnar hefjast í Reykjavik um þ. 25. júlí og verður haldið áfram í Oslo, en þeim lýkur í Reykjavík. — Samkv. »Tidens Tegn« mun íslenzka ríkis- stjórnin segja upp gildandi verzlunar- og siglingasamningum við Noreg. Ásgeir Ás- geirsson forsætisráðherra og Jón Árna- son forstjóri, fóru frá Oslo 5. júlí. For- sætisráðherrann hefur látið svo um mælt: »Mér þykir leitt, að samkomulag náð- ist ekki þegar um tækkun kjöttollsins, en ég vil leggja mikla áherzlu á, að vér höfum fengið hinar beztu undirtektir, og mætt mikilli vinsemd hjá norsku stjórninni. Tel ég víst, að slarf hinnar nýju samninganefndar muni bera góðan árangur«. Verzlunarsamningur sá, sem hér um ræðir, er uppsegjanlegur með árs fyrir- vara, en siglingasamningurinn með miss- eris fyrirvara. Jón Árnason mun verða einn hinna islenzku samningamanna. Síðastliðinn vetur sögðu Norðmenn upp kjöttollssamningnum svo nefnda, en samkvæmt þeim samningi naut ís- lenzkt saltkjöt sérstakrar tollívilnunar í Noregi. Hækkaði því stórlega tollur á íslenzku kjöti frá 1. þ. m. Þar sem Norðmenn voru ófáanlegir til að fram- kværna kjöttollssamninginn, skoraði sið-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.