Ægir - 01.07.1932, Síða 8
162
ÆGIR
ritstjórn Ægis, eins og skýrslur sýna, og
þurfti þess vegna að fá viðbót með auka-
vinnu. Þá átti ég rniklu fleiri kunningja
en nú og góða vini. Eg leitaði þvi eftir
skriftum á 2—3 stöðum. Vinur minn
einn sagði mér þá, að ég skyldi ekki
fara víðar, sökum þess, að meðan ég
væri lijá Fiskifélaginu, dytti engum í hug,
sízl útgerðarmönnum, að hleypa mér í
hækur sínar, meðan engin vissa væri
fyrir hvað félagið væri að gera. Fór ég
að orðum vinar míns og reyndi aðra leið.
Árið 1915, var skýrslukassi smíðaður
og mér sagt að hirta þar aflaskýrslur
þær, er sendar væru; var kassinn hengd-
ur utan á hús frú I. Johnson (Lækjarg.
4), þar sem skrifstofa félagsins var, frá
14. maí 1915, þar til í byrjun ágúst 1920,
er hún var flutt í Eimskipafélagshúsið.
1 þenna kassa var hinum og öðrum
fréltum um afla, fest upp; var það þá
einu sinni, að ég hatði fengið verð á síld
og treysti þeim, sem upplýsingarnar gaf,
manna bezt.
Þetla var nokkru áður en sildarskipin
lögðu út. Þóttist ég nú maður með mönn-
um að geta birt slíkar merkisfréttir í
kassanum, en Adam var ekki lengi í
Paradís. Eftir 2 klukkutíma kom maður
á skrifstofuna og spurði mig hvort fé-
lagið væri að reyna að stöðva síldveiðar
því reyndist verð það rétt, sem auglýst
væri í kassanum, færi enginn á síld, en
nú vildi hann sýna mér hvað boðið væri
í hana og var það miklu hærra en hið
augl^'sta. Flýtti ég mér svo niður og
tók auglýsinguna burt — og var það hin
fyrsta og síðasta tilkynning um síldar-
verð, sem í kassann kom. Annars má
segja það í stuttu máli, að aflasöfnun og
skýrslur, voru í mesta ólagi, þar til menn
voru með lögum 1925, skyldaðir til að
láta af hendi aflaskýrslur og gekk for-
seti Kristján Bergsson ríkt eftir þeim og
er nú söfnun í bezta lagi.
Erindrekar Fiskifélagsins.
Þeir hafa allir skrifað eitt og annað,
sem birst hefur i Ægir, auk þeirra
skýrslna, sem þar eru prentaðar og þeim
her að senda. Sama er að segja um nú-
verandi skipaskoðunarstjóra ríkisíns, ól.
Th. Sveinsson, sem gerðist vélfræðiráðu-
nautur Fiskifélagsins 1. janúar 1914 og
sagði upp þeirri stöðu um áramótin 1919
—1920. Hann samdi hina fyrstu kennslu-
bók í mótorfræði, sem félagið gaf út og
hóf þegar kennslu á hinum vel séðu
námsskeiðum í mótorvélafræði, sem voru
um eitt skeið, ekki hin veigaminnsta
stoð Fiskifélagsins.
Athugavert efnisyfirlit.
Pegar ég tók við Ægi 1914, reyndi ég
að fylgja sem hezt í fótspor hins fyrra rit-
stjóra og raða niður efni á líkan hátt.
hann raðaði ýmsu, sem við har hér,
undir lið, sem hann nefndi »Heima«, og
ýmsum fregnum frá útlöndum undirlið,
sem hann kallaði »Erlendis((. í efnisyfir-
litum standa þessi orð og fyrir aftan þau
eru þær blaðsíður tilteknar með tölum,
þar sem liðir þessir byrja, en ekki getið
eða hent á, hvað þeir hafa inni að halda,
en þar kennir margra grasa og margan
fróðleik þar að finna. Vil ég því benda
mönnum á að leita þar að ýmsu, sem
þeir búast við að finna í Ægi, en sjá
það hvergi í efnisyfirlitum.
Af gömlum vana hélt ég þessu áfram
þar til árið 1920, þá fyrst áttaði ég mig
á, að hér væri um galla að ræða og að
efnisyfirlit ætti að sýna hverja grein, sem
í ritinu væri, sérstaklega, og hefur því
verið haldið síðan.