Ægir - 01.07.1932, Page 12
166
ÆGIR
Matlhías Pórðarson, fæddur 1. júlí 1872.
Forseti félagsins frá 5. júli 1913, til sum-
armála 1914, er hann fór til útlanda í
þarfir félagsins og afhenti Hannesi Haf-
liðasyni forsetastörf. Hann býr i Kaup-
mannahöfn. (Sjá Ægir 1922 bls. 86).
Jón E. Bergsveinsson, fæddur 27. júní
1897. Forseti félagsins frá 25. febr. 1922
til 20. febr. 1924. Hann býr nú í Reykja-
vík og er erindreki og skrifstofustjóri
Slysavarnarfélags Islands. (Sjá Ægir 1929
bls. 152).
Kristján Bergsson, fæddur 29. desem-
ber 1884. Forseti félagsins frá 20. febr.
1924; hefur síðan verið endurkosinn á
öllum Fiskiþingum og hefur nú verið
lörseti í rúm 8 ár.
Þessir fjórir forsetar félagsins, hafa all-
ir tekið próf í siglingafræði og verið skip-
stjórar.
Dr. Bjarni Sœnuindsson og skipstjóri
tíeir Sigurðsson hafa verið meðstjórn-
endur félagsins frá stofnun þess.
Vélbátur brennur.
Tveir menn slasast.
Nóttina milli 5. og 6. júlí brann vél-
bátur frá Vestmannaeyjum úti fyrir
Heykjanesi. Hét báturinn »Elliðaey«, eign
Stefáns Ingvarssonar. Lá báturinn um
kyrrt og voru bátverjar að veiðum, þegar
kviknaði i honum. Ætluðu þeir fyrst að
setja vélina í gang og reyna að komast
til Grindavíkur, en eldurinn magnaðist
svo, að þess var enginn kostur. Fóru
þeir þá i smábát, sem þeir höfðu með
sér, og komust i land í Sandvík, sem
er á leiðinni milli Reykjanessvita og
Grindavíkur.
Bátverjar voru 5. Tveir þeirra brennd-
ust töluvert. Annar var matsveinn. Voru
þeir frammi í bátoum, þegar kviknaði i
honum, en hinir þrír voru aftur í hon-
um og sakaði þá ekki. Þeir, sem brennd-
ust, gengu þegar austur í Grindavík og
komu þangað kl. 6 um morguninn, en
hinir biðu til þess að vita, hvort nokkru
yrði hægt að bjarga úr bátnum, þvi að
vindur stóð á land, og rak bátinn upp
að ströndinni; en hann var þá svo
brunninn, að hann var að öllu ónýtur
orðinn.
Sendiherra Dana hefur góðfúslega
sent Fiskifélaginu eftirfarandi skeyti, sem
honum hefur borist frá sendisveitinni í
Oslo, hinn 4. júlí:
Samkvæmt nýrri löggjöf um saltfisks-
útflutning, getur konungur Norðmanna
ákveðið, að sá er flytur út fisk, skuli
vera félagi einhvers sambands og að
reglugerð þess sé samþykkt af stjórn-
inni, eða að slíkt samband hafi sam-
þykkt útflutninginn. Til mála getur
komið, að útflytjandi verði að fullnægja
báðum þessum skilmálum. Vottorð um,
að þessir skilmálar séu uppfylltir, á að
afhenda tollstjórninni, þegar fiskur er
fluttur út.
Áður en konungur tekur ákvarðanir
um áðurnefndar ráðstafanir, skal leggja
þær fyrir Fiskiráð, sem er skipað 5
mönnum, auk fleiri, sem stjórnin kann
að skipa, að ráði Noregsbanka, fiski-
deilda, fiskverkunarmanna og útflytjenda.
Nánari framkvæmd laganna ákveður
konungur eða sá, sem hann skipar í
sinn stað.
Lög þessi öðlast gildi, þegar konungur
ákveður.