Ægir - 01.04.1934, Síða 8
94
ÆGIR
í skipið aftur. í siðara sinni náði hann i
enda á mezanskautinu, sem skolast hafði
út og dró sig upp í skipið á því, því
skipið hafði kastast á hliðina.
1 annað sinn lenti hann i ofviðri á
Eyrarbakkaflóa ; var hann þá skipstjóri.
á »Seagull«. Gekk stór brotsjór yfir skip-
ið er lagði það á hliðina svo það hálf-
fyllti, en allt í skipinu fór úr skorðum
og út í aðra hlið þess. Með hugrekki og
dugnaði Friðriks og skipverja hans tókst
að rétta það aftur og ausa úr því sjón-
um. Komust þeir síðan til Reykjavíkur
og fengu aðgerð á því, sem aílaga hafði
farið.
Friðrik var svo heppinn stjórnari, að
meðan hann hafði skipstjórn á hendi
missti hann engan mann út af skipi
sínu. Margir af skipverjum hans frá þeim
árum minnast hans nú með þakklátum
huga og óska þess, að honum megi vel
farnast það sem hann á eftir ólifað. Frið-
rik var skipstjóri siðast á m.k. »Iho«,
eign H. P. Duus, en það var síðastaþil-
skipið, sem gert var út frá Reykjavík og
nú liðið undir lok; en eigi lagði Friðrik
þó niður sjómennskuna, heldur fór hann
sem háseti yfir á togara, þó fullorðinn
væri og er hann nú, háseti á togaranum
»Kári Sölmundarson«.
Friðriks mun æ verða minnst sem
eins hins heppnasta og duglegasta for-
manns í þilskipaútgerð Reykjavíkur.
Nýtt útgerðarfélag á ísafirði er ætlar
að reka bátaútgerð.
Sunnudaginn 25. febr. var stofnað nýtt
útgerðarfélag í Isafirði. Heitir það Hug-
inn og voru kosnir í stjórn þess, Björg-
vin Bjarnason, Jóhann Eyfirðingur, Jón
S. Edwald konsúll, Arngrímur Fr. Bjarna-
son ritstjóri og Gtsli Júlíusson skipstjóri.
Stofnfé félagsins er 80 þús. krónur og
ætlar það að kaupa stóra vélbáta til út-
gerðar. Hefur Bárður Tómasson skipa-
smiður gert teikningu af bátunnm, en
Björgvin Bjarnason ætlar að fara utan
til þess að leita fyrir sér um smíði
þeirra. Gera þeir ráð fyrir að kaupa 5
báta í byrjun.
Ðókarfregn.
Sigarðar Skúlason: Saga Hafnarfjarðar. Rvk.
Á kostnað bæjarsjóðs Hafnarfjarðar 1933.
Þann 1. júní 1933 átti Hafnarfjarðar-
kaupstaður aldarfjórðungsafmæli. Þessa
afmælis hefur bæjarstjórn kaupstaðarins
nú minnst með því að gefa útsögu Hafn-
arfjarðar frá elztu tíð, og er bókin yfir
700 bls. og prýdd 128 myndum frá ýms-
um tímum.
Bæjarstjórnin fól Sigurði mag. Skúla-
syni að semja bókina, og lauk hann
þessu stórvirki á rúmum tveimur árum,
en af þeim tíma mun hafa farið nálega
hálft annað ár í að safna efni í bókina,
enda varð höfundur að viða þvi að sér
úr ýmsum áttum, meðal annars úr skjala-
söfnum í Þýzkalandi og Danmörku.
1 bókinni er samankominn geysilegur
fróðleikur og það sem mest er um vert
er, að hann er settur þannig fram, að
bókin er mest öll skemtileg aflestrar og
hvergi þur eða leiðinleg. Bókin sjálf er
í 11 köflum sem hér segir:
1. Kafli: Umhverfi Hafnarfjarðar (bls.
7—20), 2. kafli: Hinar fornu bújarðir í
Hafnarfirði (bls. 21—99), 3, kafli: Saga
verzlunarstaðarins (bls. 100—409), 4. kafli:
Upphaf Hafnarfjarðarkaupstaðar (bls.
410—428), 5. kafli: Landeign og skipulag
kaupstaðarins (bls. 429 — 459), 6. kafli: