Ægir - 01.04.1934, Síða 11
ÆGIR
97
verkuðum fiski til Pireus og ætla Grikk-
ir að verka hann sjálfir. Eru Frakkar þó
lítið hrifnir af þeirri verzlun, því hún
hefur spillt mjög fyrir sölu á pressufiski
þeirra, sem kallaður er »lavé«, og verð-
ið er mjög lágt, 140 frankar pr. 100 kg.,
af stærðinni 120—140 í 80 kg. pakka,
(samsvarar til 75—90 í 50 kg. pakka).
Helgi P. Briem.
Úr bréfi frá Bandarfkjunum.
(ía/s 1934). Gæftir hafa verið mjög slæm-
ar þennan liðna vetur, ákaflega miklir
kuldar og fannkoma, en vegna þess hve
sjaldan hefur gefið á sjó, hefur fiskverð
verið fremur gott, mest vegna þess, að
smábátar meðfram ströndinni hafa ekki
komist á sjó, er hafnir og firðir hafa
verið ísi þakið.
Hið merkasta sem hér hefur gerst á
sviði fiskveiðanna, eru hin nýju lög »Code
of fair practice«, sem forseti Franklin D.
Roosevelt undirskrifaði þann 26. febrúar
þ. á. (1934). Allir þeir sem við fiskiðn-
að í Bandaríkjunum eru riðnir, voru
sammála um, að fiskverzluninni væri
mjög ábótavant, og að ýmislegt yrði að
laga þar, ef vel ætti að fara.
I lögunum eru ákvæði, sem bæta úr
ýmsu af þvl, sem hefur haldið fiskverð-
inu niðri, t. d. verður gefinn út verðlisti
fyrir sölu á fiski og enginn má selja
undir því verði, sem þar er ákveðið, eða
hafa klær úti til að losna við fisk fyrir
laegra verð en hið ákveðna.
1 þessum fisksölusamtökum iðnrek-
enda, sem stjórn Bandaríkjanna hefur
nú veitt sitt lið og forsetinn staðfest lög,
þar að lútandi, hefur verið kosin stjórn,
skipuð 14 mönnum; hafa fiskifélög um
allt landið útnefnt 12, en stjórnin 1 Was-
hington 2 menn ; er annar þeirra íslend-
ingurinn Magnús Magnússon útgerðarm.
frá Winchester. Stjórn þessi á að sjá um,
að enginn brjóti hin settu lög.
Pað er enginn efi á þvi, að það er
hinn eini vegur til þess, að útgerðin beri
sig, að allir séu samtaka og engum leyf-
ist að selja fisk undir ákveðnu verði,
eða á einhvern hátt spilla fyrir sölu ann-
ara. Framkvæmdir eru þegar hafnar.
Sem dæmi upp á þekkingu fundar-
manna í Washington, á landi voru Is-
landi, skal þess getið, að þeir stóðu fast
á því, að hr. Magnús Magnússon hlyti
að vera Eskimói, af því hann er fæddur
á Islandi.
í vetur hafa togarar aflað vel, en hafa
þó orðið að leita lengra en undanfarin
ár, því veiðar á »Georges Bank« hafa
algerlega brugðist, en það hafa þær aldrei
gert fyr, svo menn muni. Aftur á móti
aflaðist vel á »Western Bank« eða »Sable
Island Bank« og hefur mest af aflanum
fengist þar. Pau fiskimið eru um 500
mílur frá Boston. 1 gær (21. marz) komu
hér á land 2 milljónir punda af fiski og
var verðið: ýsa 3 cent, þorskur 2x/acent
hvert pund og smáfiskur 2 cent. Annars
hefur verð verið, hér um bil, svo í allan
vetur: Ýsa um 3 cent og þorskur 4 cent
pundið . . .
Nýja síldarverksmiðjan.
Síðasta vetrardag (18. apríl), fóru héð-
an með varðskipinu »Ægir«, þeir Krist-
ján Bergsson.Sveinn Benediktsson.Trausti
Ólafsson, Finnbogi R. Porvaldsson og
Ólafur Þórðarson frá Hafnarfirði, til þess
að athuga, hvar heppilegastur staður
væri fyrir hina væntanlegu síldarverk-
smiðju á Norðurlandi. Hinir þrír fyrst
töldu eru ráðunautar ríkisstjórnarinnar
um hvar verksmiðjuna skuli reisa.