Ægir - 01.04.1934, Síða 17
ÆGIR
103
farmar: 5 í janúar 5 í febrúar og 1 í
marz. Skiptist veiðin á útfluttu síldinni
eftir áramót á firðina þannig:
í Norðfirði, Hellisf. og Mjóaf. 648869 kg.
» Eskifirði................... 474638 —
Samtals 1123507 kg.
Á öðrum fjörðum hefur ekki verið um
síldveiði að ræða eftir áramót, nema
hvað lítilsháttar hefur veiðst í net á Fá-
skrúðsfirði.
Um síldveiðina má það segja, að hún hef-
ur verið stopul að þessu sinni. Þurftu
skipin oft að bíða lengi eftir farmi.— ó-
stöðug veðrátta í janúar og febrúar átti
talsverðan þátt í þessu, en yfirleitt var
síldargengd miklu minni, en tvo síðast-
liðna vetur. Eftir að kom fram um 20.
febrúar, veiddist ekki síld i nætur nema
á Eskifirði.
Um útflutninginn á isvörðu sildinni
má segja þetta: Að þrátt fyrir það þótt
eigi gengi ávalt eins fljótt að veiða í
skipin og æskilegt hefði verið, þá má
gera ráð fyrir, að sú reynzla, sem þegar
er fengin verði til þess, að framhald verði
á þessum flutningum, ef síld veiðist næstu
vetur. Salan var að vísu misjöfn, en að
gæðum þótti þessi sild taka mikið fram
norsku vorsíldinni.
Það er athyglisvert, að þá daga eða
tima, er sild veiddist ekki í fjörðunum,
var þar oft mikið af smáufsa. Yeiddust
stundum nokkur hundruð tunnur af ufsa
i kasti, Ufsanum var sleppt aftur, en at-
hugandi væri ef síldarverksmiðja verður
reist á Austurlandi, hvort ekki mundi
svara kostnaði að veiða ufsann til vinnslu
í slíkri verksmiðju.
Á Austfjörðum hefur verið fryst frá
áramótum alls 820 tunnur af síld, eða
sem svarar 14 tunnum á hvern dekkað-
an vélbát, sem gerður er út. Mikið af
þessari frystu sild er notað til beitu eft-
ir hendinni og nú um mánaðamótin
marz—april er sáralítið til af frosinni
sild.
Nokkrir menn á Seyðisfirði hafa keypt
vélbátinn Hvíting frá Akureyri og nota
hann til flutninga nú á vertíðinni. Var
full þörf á að fá farkost til flutninga á
þessu tímabili og er þess að vænta, að
eigendur Hvitings fá nokkra hjálp til að
annast flutningana.
Eskifirði, 6. apríl 1934.
Friðrik Steinsson.
í síðustu skýrslu minni, Ægir 2. tbl. bls. 51,
er leiðinleg prentvilla. Stendur að útflutt hafi
verið í ís, 563 988 tunnur af síld, en á vitanlega
að vera kilo. Fr. St.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1934.
7. Lieiörétting-ar* við Skrá yfir
vita og sjómerki á íslandi 1934:
a. Viti nr. 73, Bjarnarey. Breidd og
lengd er 65° 47' 12" — 14° 18' 38"
Hæð ljóssins yfir sjó er 26 m.
b. Viti nr. 80, Mjóeyri, Eskifirði. Breidd
og lengd er 65° 03' 34" — 13° 59'47".
Hæð ljóssins yfir sjó er 5 m.
c. Viti nr. 81, Vattarnes. Breidd og
lengd er 64° 56' 09" -13° 41' 16".
Hæð ljóssins yfir sjó er 20 m.
8. Ljós- og hljóðbaujan á Valh.tks-
grunni hefir verið lögð út að nýju.
Liggur lítið eitt sunnar en áður á ca. 30
m. dýpi.
2% 1934.
Vitamálastjórinn
Th. Krabbe.