Ægir - 01.04.1934, Síða 19
ÆGIR
105
tungum. Nokkur töf varð að snjó, en að
öðru leyti gekk ferðin vel. Hannes á Núp-
stað fer aftur til byggða, en eftir verður
hjá okkur Eyjólfur sonur hans og Jón
Jónsson frá Rauðabergi. Er nú í ráði að
draga allan farangur okkar á sleðum
inn á móts við Hágöngur og hafa þar
aðalbækistöð. 1 ráði er að 3 okkar leggi
svo af stað á morgun inn að eldstöðvun-
um, ef heiðskirt verður og sólbjart. Hitt
er 3 stig og hæð nálægt 620 metrum.
Klukkan um tvö hinn 13. voru leið-
angursmenn komnir á gigbarminn vest-
anverðan. Veður var þá bjart, en vindur
nokkur af suðaustri. Peir félagar segja
gosið í Sviagíg, sem þeir telja fremur
dal í jöklinum en gíg, í þeirri merkingu,
sem við hugsum okkur gig. Öll dalhvos-
in var hulin reyk, svo hvergi sá til botns,
en upp úr reykjarsvælunni stóðu þrír
gosstrókar með löngu millibili — og var
einn þeirra um 500 metrar á hæð og
um 50 metrar í þvermál, þar sem fyrst
sá til hans upp úr reykjarsvælunni í
dalnum. Leiðangursmenn urðu brátt frá
að hverfa, því veður fór versnandi, og
komust þeir af jöklinum sunnudaginn
15., og hingað til Reykjavíkur kom Guð-
mundur Einarsson og félagar hinn 19.
april. — Þýzk stúlka, Lydia Zeitner var
með i förinni.
Meðan Guðmundur Einarsson var
eystra komu hingað danskir vísinda-
menn, sem rannsaka ætla gos þetta, og
hafa þeir allan útbúnað til langrar dvalar
í Vatnajökli.
Foringi þeirrar rannsóknarferðar er
Dr. N. Nielsen náttúrufræðingur og Milt-
hers að nafni, ungur jarðfræðingur, með
honum.
Nýkeypt flutningaskip.
Um miðjan apríl bárust hingað þær
fregnir, að þrjú flutningaskip hefðu verið
keypt í útlöndum, og eru eigendur þessi
félög:
H/f. y>Eimskipafélag Reykjavíkura kaup-
ir e/s »ManchioneaI«, sem smíðað var
hjá Burmeister & Wain í Kaupmanna-
höfn 1911. Stærð þess brúttó 1654 tonni
nettó 1037 tonn.
H/f. y>Eimskipafélagið ísafold« kaupir
e/s »Amstel-Stroom«, hét áður »Merw-
ede«, smiðað í Haarlem 1919. Stærð þess
brúttó 1568 tonn, nettó 935 tonn, og á
að heita »Edda«.
Þetta félag átti áður flutningaskipið
»Edda«, sem hóf héðan siglingar í ágúst
1933, en strandaði fyrir vestan Horna-
fjörð, hinn 25. janúar 1934, og varð
algert strand.
H/f. »Eimskipafélagið Fram« er ný-
stofnað félag. Það kaupir e/s »Commo-
dore Rollins«, smíðað hjá Bergens Meka-
niske Verksted 1911. Stærð: brúttó 1576
tonn, nettó 962 tonn.
Það er gleðilegt til þess að vita, að
Islendingar taki nú eitthvað af þeim
miklu vöruflutningum í sinar hendur,
sem útlendingar undanfarið hafa haft,
og vonandi verða hin íslenzku félög látin
sitja fyrir með flutninga, þótt annara
þjóða skip bjóðist til að flytja vörur fyrir
lægra gjald, en hin íslenzku félög geta
boðið.
Þessi útgerð veitir mörgum atvinnu,
og í hlutfalli við mannfjölda hér, er hvert
skip með 16 manna áhöfn, miklu meiri
vinnuveitandi, en stórt Cunardlínuskip,
með 800 manna áhöfn, samanborið við
mannfjölda á Englandi (líklega 7—8
sinnum meiri).
»Edda« er væntanleg til Hafnarfjarðar