Ægir - 01.04.1934, Síða 20
106
ÆGIR
hinn 1. maí n. k.; verður hún fyrsta
skipið, sem kemur.
Flóöbylgjan í Tafjord.
Stórkostlegt slys varð í Tafjord, nálægt
Álasundi, kl. 3 aðfaranótt laugardagsins,
7. apríl. Uppi í fjalli við fjörðinn gnæfði
hamrabelti yfir hann, og um langan
tima höfðu menn tekið eftir, að kletta-
hengja þessi varð ægilegri ár frá ári og
ótluðust, að hamarinn myndi falla fram
og steypast í sjóinn þá og þegar; bjugg-
ust þorpsbúar í Tafjord við, að flóðalda
mundi verða, þegar hamarinn félli í sjó-
inn, en hugsuðu ekki út í það, hversu
mikil hún yrði og biðu því átekta.
Við Tafjord er annað lítið þorp, sem
nefnt er Fjöran.
Hamarinn féll í sjóinn eins og áður getur.
Voru flestir þá í fasta svefni er flóðaldan
ruddist 7—800 metra á land upp, og fór
yfir bæði þorpin.
í Tafjord fórust 22 menn, en 17 f Fjöran.
Um 30 hús eyðilögðust með öllu í Tafjord
auk annara mannvirkja, skipa og báta,
og dró útsogið brakið úr þessu öllu út á
fjörðinn, og flest lík þeirra, sem drukkn-
uðu, soguðust út í sjó.
Fólkið í húsunum vaknaði úr fasta
svefni við skriðudynkina, heyrði síðan
til flóðöldunnar og rauk út í myrkrið
og vissi ekkert hvað var að gerast fyr en
um seinan. — Þeir, sem komust lífs af,
höfðu hlaupið upp á næstu hæðir og
hóla.
Orð fá ekki lýst þeim hörmungum,
sem á þessum stöðum mátti líta, enda
talið, að þetta sé eitt með mestu slysum,
sem í Noregi hafi orðið.
Fjársöfnun var þegar hafin til að hjálpa
hinum nauðstöddu í Tafjord og Fjöran.
Finnur Jónsson
prófessor
lézt 30. marz að heimili sínu í Kaupm.-
höfn. Hann var því nær 76 ára gamall,
fæddur 20. maí 1858, á Akureyri, elztur
barna Jóns Borgfirðings, fræðimannsins
alkunna, og konu hans Önnu Guðrúnar
Eiríksdóttur.
Með Finni Jónssyni er i val fallinn
einhver víðkunnasti vísindamaður ís-
lenzkur sinna samtíðarmanna, og einn
af merkustu norrænufræðingum er uppi
hafa verið.
Stúdent varð Finnur Jónsson 1878.
Fór þá utan og las norrænu og varð dr.
phil. í þeim fræðum 1886, en prófessor
við Kaupmannahafnarháskóla 1888. Því
embætti gengdi hann í 38 ár. Þá fékk
hann lausn með fullum embættislaunum,
sjötugur að aldri. Aldursforseti íslenzkra
menntamanna í Kaupmannahöfn mun
hann hafa verið frá dauða Þorv. Thor-
oddsens 1921.
Mörg virðingarmerki féllu Finni Jóns-
syni í skaut. Meðal annars var hann
heiðursborgari Akureyrar. Auk hans hafa
það aðeins orðið tveir menn, Matthías
Jochumsson og paterJón Sveinsson, sem
nú er einn á lífi þeirra þriggja.
Finnur Jónsson var kvæntur danskri
konu, og áttu þau son einn barna er
Jón heitir.
Spönsku togararnir,
»EuskalErria«,»Hispania« og »Galerna«
komu til Reykjavíkur 28. apríl, til að
taka kol og salt. Þeir hafa aflað um 650
tonn af fiski hver og telja það góðan
afla.