Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1934, Page 22

Ægir - 01.04.1934, Page 22
108 ÆGIR Fiskverzlunin við Spán. Spánverjar hafa nú sett hömlur á inn- innflutning á saltfíski. Hefur stjórnin á- kveðið skömtun innflutningsleyfa og má ekki flytja til landsins meiri saltfísk en fluttur var inn síðastl. ár. Þessu inn- flutningsmagni verður svo skipt milli þeirra þjóða, sem flutt hafa saltfísk til Spánar, þ. e. hverri þjóð leyft að flytja inn ákveðið magn af þessari framleiðslu. Pessar hömlur, sem spanska stjórnin hefur sett á saltfisksinnflutninginn, koma án efa mjög hart niður á okkur Islend- ingum, ef ekki fæst bót ráðin á með samningagerð. Hefur ríkisstjórnin sent þá Svein Björnsson sendiherra og Ric- hard Thors, formann Sölusambands is- lenzkra fiskframleiðenda, til Spánar, til þess að reyna að komast að hagfeldum samningum við stjórnina. Sömuleiðis fóru héðan (9. apríl) banka- stjórarnir Magnús Sigurðsson og Helgi Guðmundsson, áleiðis til Spánar í sömu eríndagerðum og hinir tveir áðurnefndu. Danir hafa þegar sent nefnd til að gæta hagsmuna sinna og Færeyinga. Frá utanríkisráðuneytinu 31/s 1934. Saltfisksinnflutningur til Portúgal síð- astliðið ár er sem hér skýrir frá, og til samanburðar, árið 1932. 1933: 1932: Frá Danmörku 208 442 181 734 — Frakklandi .. 2 492 917 352 227 — íslandi .. 15 084 573 14 264 288 — Noregi ... 14 012 746 19 867 571 — Englandi og írska friríkinu ... 6 641 386 4 767 895 — Newfoundlandi ., ,.. 6 296 355 4 392 416 — Oðrum löndum.. .. 1 596 347 996 290 46 332 766 44 822 421 (Tölurnar eru kílógröram). Mótorbátur til sölu: Góður færeyskur mótor- bátur er til sölu, síðast í næstkomandi maímán- uði. Báturinn er 32ja feta langur og í honum er 32ja hesta Wickmann- vél, 5 ára gömul, lítið notuð. Lysthafendur snúi sér sem fyrst til Sigvald Jacobsen, Klaksvik. — Færeyjum, cflecjir a monthly review of the fisheries and fish trade of Iceland. Published by: Fiskifélag Islands (The Fisheries Association of Iceland) Reykjavík. Results of the Icelandic Codfisheries from the beginning of the year 193í io the 15fh of April, calculated in fully cured state: Large Cod 25.774, Small Cod 6.428, total Haddock 106, Saithe 545, total 32.853 tons. Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.