Ægir - 01.04.1934, Side 23
ÆGIR
TILKYNNING
um síldarloforð til Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði.
Þeir, sem vilja lofa síld til vinslu í sildarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði á næstkomandi sumri,
skulu innan 20. maí n. k., hafa sent stjórn verksmiðjanna símleiðis eða skriflega tilkynningu um það.
Utgerðarmaður skal tilkynna hvaða skip hann ætlar að nota til veiðanna, einnig hvort hann vill skuld-
binda sig til þess að afhenda verksmiðjunum alla bræðslusíldarveiði skips síns eða skipa, eða aðeins
hluta veiðinnar. Þau skip, sem afhenda verksmiðjunum alla veiði sína, eða alla bræðslusildarveiði sína,
ganga að jafnaði fyrir þeim skipum með samninga og afgreiðslu, sem aðeins hafa verið skuldbundin
til að afhenda hluta af bræðslusíldarveiði sinni, eða hafa enga samninga gert fyrirfram.
Verði meira framboð á síld, en verksmiðjustjórnin telur sýnilegt að verksmiðjurnar geti unnið
úr, hefir stjórnin óbundnar hendur til að ákveða, af hve mörgum skipum verksmiðjurnar taki síld iil
vinslu. Ef um framboð á síld til vinslu er að ræða frá öðrum en eigendum veiðiskipa, skal sá, er býður
síldina fram til vinslu, Iáta skilríki fylgja fyrir þvf, að hann hafi umráðarétt á skipinu yfir síldveiðitímann.
Verksmiðjustjórnin tilkynnir fyrir 10. júní n. k. þeim, sem boðið hafa fram síld til vinslu í
verksmiðjurnar, hvort hægt verði að veita síldinni móttöku, og skulu þá allir þeir, sem lofað hafa síld
til verksmiðjanna, og stjórnin hefir ákveðið að taka síld af, hafa innan 20. júní n. k. gert samning
við verksmiðjustjórnina um afhendingu síldarinnar. Að öðrum kosti er verksmiðjunni ekki skylt að
taka á móti lofaðri síld.
Siglufirði, 4. apríl 1934.
Stjórn Síldarverksmiðju ríkisins.
FREDERIKSSUND SKIBSVÆRFT
KRISTIAN ANDERSEN, Frederikssund.
Allar stærðir af mótorbátum, með góðum og viðurkendum
hráolíumoíor. Bátarnir eru byggðir úr eik og eru viður-
kenndir sem þeir traustustu og beztu, sem völ er á. —
Hefir selt báta til íslands síðastliðin 32 ár.
. Umboðsmenn:
EGGERT KRISTJÁNSSON & CO., REYKJAVÍK
RlKISPRENTSMIÐJAN GUTENBERG
SÍMAR 3071, 3471 — REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 164
Annast prentun ríkissjóðs og stofnana og starfsmanna ríkisins.
Leysir auk þess af hendi alla vandaða BÓKAPRENTUN,
NÓTNAPRENTUN, EYÐUBLAÐAPRENTUN, LITPRENT-
UN, og margt fleira, eftir því er kringumstæður leyfa.