Ægir - 01.10.1934, Blaðsíða 4
206
ÆGIR
Hiö nyja hús Fiskifélagsins.
Fiskiþing, á undanförnum árum, hafa
verið háð á eftirtöldum stöðum i Reykja-
vík : Hið fyrsta þing i Good-Templara-
húsinu 30. júni 1913 og þar fram að ár-
inu 1919; var fundarstaður það ár á skrif-
stofu Fiskifélagsins í Lækjargötu 4 og
sömuleiðis árið 1921, en það var hið
siðasta sumarþing.
Hinn 13. febrúar 1922, kemur þingið
enn saman á skrifstofu féiagsius, sem þá
er ílutt í Eimskipafélagshúsið og er það
hið fyrsta vetrarþing. Hinn 12. febrúar
1924 kemur það saman í Kaupþingssaln-
um og varð hann fundasalur Fiski-
þingsins, árin 1924, 1926, 1928 og 1932,
en þingið 1930 var haldið i hinni svo-
nefndu »Baðstofu« i Iðnaðarmannahús-
inu i Lækjargötu 14.
Fiskiþingið 1934 heldur fundi sina nú
í fyrsta sinn í fundarsal hins nýja húss
félagsins, »Höfn«.
Mörg merk mál voru tekin fyrir á
þinginu, en hér er ekki rúm til að telja
þau upp, eigi heldur sam-
þykktir þær, sem gerðar
voru; kemur það allt í
skýrslum, sem verið er að
prenta ogverður þeim eins
og að undanförnu útbýtt til
æfifélaga, fiskifélagsdeilda
og opinberra stofnana.
Hinn 22. oktbr. að kveldi
fór stjórnarkosning fram
og hlutu kosningu :
Forseti Krislján Bergs-
son með 11 atkvæðum.
Varaforseti Ól. Björns-
son með 8 atkvæðum.
Meðstjórnendur: Bjarni
Sœmundsson með 12 at-
kvæðum og Geir Sigurðs-
son með 10 atkvæðum.
Vara-meðstjórnendur:
Jón ólajsson með 10 atkv.
og Porsteinn Porsteinsson með 9 at-
kvæðum.
Fiskiþinginu var slitið hinn 24. oktbr.
og hafði þá staðið yfir í 19 virka daga.
Hið dularfulla botnvörpuskip.
Hver er leyndardómur hins nýja botn-
vörpuskips »Hampshire«, sem nýlega var
hleypt af stokkunum og afhent eigend-
unum, The Hampshire Steam Fishing
Co. ? Þannig er spurt í septemberhefti
Fishing News. Eigendur þegja um það
og framkvæmdastjóri félagsins Mr. H.
Markham Cook segist ekkert láta uppi,
fyr en eftir fyrstu ferð skipsins til Bjarn-
areyjar. Skipið lagði af stað í sína fyrstu
ferð hinn 19. september, undir stjórn
skipstjóra Petersens,
Hið eina, sem menn hafa komist að
er, að farmrúm er einangrað með að-
ferð, sem ekki hefur áður þekkst,