Ægir - 01.10.1934, Síða 13
ÆGIR
215
Akkeri og keðjur.
Þegar bátar og skip tapa legufærum,
er nauðsynlegt að önnur komi í staðinn.
Svo getur staðið á, að síma þurfi eftir
þeim og verður þá að tiltaka í skeyti
eða skýrslu, hve þung akkeri þurfi og
hve gildar keðjur eigi að vera.
t'ótt undarlegt sé, þá vantar mikið á,
að formenn almennt hafi iekið eftir þessu
atriði, sem öllum þeirra ætti að vera
Ijóst. í grein þeirri, sem um þelta atriði
fjallar í »TiIskipun um eftirlit meðskip-
um og bátum, 17. gr. bls. 12, er tafla,
sem sýnir þyngd akkera og gildleika
keðja, sem fer eftir stærð bátanna — og
nær til 100 tonna báta, en fari fram úr
þeirri stærð, skal farið eflir reglum við-
urkennds flokkunarfélags (sbr. »Tilskip-
uninnar« 150 gr.). Um þyngd akkera er
það að segja, að patent akkeri eiga að
vera 25% þyngri en stokkakkeri, áskip-
um upp að 100 tonnum.
Eftir áðurnefndri töflu þarf 5—15 tn.
bátur að hafa:
13—14 raillimetra gilda keðju, um >/« þral.
15—20 tonna bátur 14—16 mra, ura 5/s þral.
30—40 tonna bátur 17—19 ram, um s/‘ þujl.
40—60 tonna bátur 19—22 mm, um 7/a þml.
60—80 tonna bátur 22—25 mra, um 1 þml.
Þeir bátar, sem eru tíu tonn ogyfireiga
að hafa 2 keðjur og á siðari tala i töfl-
unni við hina gildari, t. 40 — 60 tonna bát-
ar eiga að hafa 19 mm % þml. keðju
annarsvegar, en hin skal vera % þml.
eða 22 mm. Bátar frá 5 — 10 tonn eiga
að hafa eina keðju um V3 Þml- g»ld-
leika og eitt akkeri, sem vegur 50 kíló.
Þyngd. akkera.
Bátar 10—15 tonna skulu hafa 2 akkk. 50og75 kg.
_ 15—20 - — — 2 - 75 og 100 —
— 20-30 — — — 2 — 100 og 125 —
- 30-40 — - - 2 - 125 og 150 -
Bátar 40—60 tonna skuiu hafa 2 akk. 150og 175 kg.
— 60-80 — — — 2 — 175 og 200 —
— 80-100 - — — 2 — 200 og 250 —
Þegar beðið er um legufæri, sem senda
á til fjarlægra staða, er afaráriðandi að
rétt mál af keðjum sé tilgreint og þyngd
akkera. Og þar sem kabelskifur i spilum
eru mismunandi, verður eina ráðið að
láta 2 -3 keðjuhlekki fylgja pöntunum
til þess að áreiðanlegt se, að rétt verði
sent og ekki þurfi að skila aftur, vegna
þess að þegar til kom, var keðjan ónot-
hæf á kabelarskífu bátsins eða skipsins.
Mismunandi er einnig bvernig skip
liggja fyrir akkerum; liggja sum lélt í
þeim, en önnur taka meira á, jafnvel þeg-
ar um sömu stærð og gerð er að ræða,
og verður það því lagt undir dóm for-
manna, hvort ekki sé vissara að breyta
lítið eitt frá töflunni um þyngd akkera
og gildleika keðja, og auka það á þeim
skipum, sem láta illa þegar þau liggja
fyrir legufærum, en að draga úr ákvæð-
um »Tilskipunarinnar« má aldrei.
24. október 1934.
Sveinbj. Egilson.
Hinn 26. september
hljóp stærsta skip heimsins af slokk-
unum á skípasmíðastöð John Browns
skammt frá Glasgow. Voru þar saman-
komnar 100 þúsundir manna, til þess
að horfa á, er hið mikla skip rynni úr
skipasmíðastöðinni út á ána Clyde.
Það er 990 fet' á lengd og 80 000 smá-
lesta. Er gert ráð fyrir að það geli farið
31 mílu á klukkustund.
Nafn skipsins er »Queen Mary«.