Ægir - 01.10.1934, Blaðsíða 21
ÆGIR
223
Efnahagsreikningur 31. desember 1933.
E i g n i r:
í sjóði við árslok 1933 .......................................... kr. 12327 40
Húseignin, fasteignamat .............................................. — 110100 00
HúsgögD, borð og bekkir í kennslusal o. fl............................ — 6206 60
Bækur ................................................................ — 2859 79
Munir og áhöld fiskifræðings.......................................... — 2045 73
Munir og áhöld vélfræðings ........................................... — 860 02
»Ægir«, allt upplagið: 3013 eintök.................................... — 1506 00
Útgefnar bækur:
a. Almanak fyrir ísl. sjómenn, upplagið: 1054 eintök............ — 100 00
b. Kennslubók í mótorfræði og viðauki ......................... — 2090 00
Útistandandi skuldir fyrir »Ægir« .................................... — 700 00
Samtals kr. 138795 54
Skuldir:
Ógreitt af byggingarkostnaði o. fl. 31. desember 1933 .............. kr. 11612 51
Reykjavík, 7. febrúar 1934.
Kristján Bergsson.
Reikning pennan, ásamt fylgiskjölum, höfum við endurskoðað; ennfremur
höfum við farið yfir bækur og skjöl, tilheyrandi reikninginum og talið sjóöinn og
ekkert fundið athugavert.
Reykjavík, 26. september 1934.
Magnús Signrðsson. Brynjúlfur Björnsson.
Aftakaveður
af norðri, gekk yfir land allt, dagana
26. og 27. október. Olli það stórkostleg-
um skemmdum á bátum, bryggjum og
mörgu fleira. Vélbáturinn »Sigurður Pét-
ursson« frá Siglufirði, mun hafa farist
hinn 26 ; voru á honum fjórir menn.
Norska flutningaskipið »Kongshaug«
rak á land á Siglufirði, hlaðið síld, sömu-
leiðis línuveiðarinn »Bjarki«. Fjöldi
bryggja brotnaði og flóðöldur tvær gerðu
stórtjón á götum, mannvirkjum, vörum
í búðum, húsgögnum og matvælum. Mik-
ið tjón varð og á Siglunesi, Þórshöfn á
Langanesi og fram raeð öllu Norður-
landi, mun óhætt að segja. Auk þessa
mun fé viða hafa farið í sjóinn og fennt,
því rokinu fylgdi fannkoma víðast hvar.
Laugardaginn 27. fóru 3 menn frá
Flateyri út á svokölluð »Björg« að leiía
kinda; er það utan við Sauðanes. Nokkru
síðar fór fjórði maður sömu leið, en þeg-
ar hann kom út að Sauðanesi, sá hann
að snjóflóð hafði hrunið úr fjallinu og
hlaupið á sjó út. Höfðu hinir þrír orð-
ið fyrir því og látið þar lífið.
Þeir hétu : Bjarni Guðmundsson, Gunn-
ar Benediktsson og Ásgeir Kristjánsson,
allt ungir menn og sagðir afsamaheim-
ili.