Ægir - 01.05.1935, Síða 6
íoo
Æ G 1 R
22. s. m. sökk vélb. »Yíðir« M. B. (>.'5
á Lambbússundi o<< hefur verið samið
um, -að ekki yrði gerl við liann.
Hinn 31. janúar sighli vélh. »Svala«
M. B. 27, upp á Flösina við Akranes o<*
hrotnaði í spön. Mannhjörg varð.
í rokinu 12. marz, sökk vélh. »Þör-
ólfur« G. K. öl(), í Sandgerði, var náð
upp, en hel'ur ekki gengið siðan.
2<S. 20. marz rak vélb. »Hrönn«, eign
verzlunar Kinars G. Einarssonar, á land
í Grindavík og brotnaði, en við hálinn
hei'ur verið gert.
»Forluna« B. E. 171, hefur staðið á
landi mikinn hluta vertíðar, el'tir áfall
sem skipið i'ékk, er það slitnaði frá hryggju
í Revkjavík og rak uj)p í grjölið, fram
undan stálsmiðjunni. Ikið var nóttina
milli 31. janúar og 1. fehrúar og hefur
það ekki gengið síðan.
Drukknanir ú veiiíð 1935.
Hinn 9. janúar 4935, lorst vélbálurinn
»Xjáll« frá Súgandaíirði, úr liskiróðri
með öllum mönnum, ó að lölu.
Ilinn 2. febrúar tók stórsjór mann að
nafni Gunnlaugur Einarsson l'rá Áll'la-
lirði, út al' vélbátnum »()lver« frá Súða-
vik og drukknaði hann.
Hinn 21. febrúar l'órsl opinn vélhátur
úr Grindavík með 5 mönnum. Drukkn-
uðu 3, en tveim varð hjargað afvélhátn-
um »Garðar«, eigandi Gísli Magnússon
frá Yeslmannaeyjum.
Ilinn 12. apríl féll Lúðvík A. Jónsson
frá ísafirði út af vélbátnum »Einar« l'rá
Siglufirði, er slundaði róðra frá Isafirði.
Lúðvík sást ekki eftir að liann féll fvrir
horð og drukknaði.
Ilinn 1. maí l’éll formaðurinn Harald-
ur Guðmundsson úl af vélbátnum »Auð-
ur« frá Flateyri og drukknaði. Yeður
var fremur gotl.
Hinn 22. jan. ferst enski togarinn »Jer-
ia« frá Grimshy undan Látrabjargi með
allri áhöfn 13 mönnum. Sama dag missti
enski togarinn »Wamberry« út mann
hér úti í llóanum og drukknaði hann.
Hinn 8. fehrúar fórst enski togarinn
»Langanes« frá Grimshv við Sléttanes,
með allri áhöfn, 11 mönnum. Yið lil-
raunir við björgun skipshafnarinnar,
drukknaði stýrimaðurinn af enska log-
arainim »Bunsen« frá Grimsbv.
Hinn 31. janúar strandaði enski tog-
arinn »Lincolnebire« Irá Grimsby á svo-
nefndum Jörundarboða á Skerjafirði.
Skipsverjar komust allir lífs af.
Ilinn 1. marz strandaði þýzki logar-
inn »I)ússeldorf« frá Guxhaven, fram
undan Seljalandi undir Eyjafjöllum. Skip-
verjum öllum 13 að tölu varð hjargað,
með aðstoð manna úr landi.
Hinn 11. marz strandaði franska fiski-
skipið »Lieutentanl« Boyau« frá Dun-
kerque, á Meðallandsfjöru. 24 menn
hjörguðust, en á fórust, drukknuðu 3
þeirra, en 2 dóu rétt eftir að þeir voru
komnir á land.. Tveir útlendingar hafa
fallið útbyrðis og drukknað hér við land.
Af íslendingum drukkna alls 11 menn,
en al' útlendingum hér við land 39, séu
þeir 3 Danir taldir með, sem fórust á
vélhátnum »Knúti«, sem þeir voru að
llytja hingað frá útlöndum; var Karvel
Ögmundsson í Njarðvik eigandi lians.
Slysið mun hafa orðið milli Eærevja og
íslands.
Arið 1934 drukkna 7 íslendingar á ver-
líð, en á verlíð 1933 drukknuðu 49.
Fisksölusambandið.
Stofnfundir þess voru haldnír dagana
24. og 25. maí, lög þess voru samþykkt
og kosin stjórn.