Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1935, Qupperneq 7

Ægir - 01.11.1935, Qupperneq 7
Æ G I R 233 un og starfrækslu innlendrar mótorvéla- verksmiðju«. G r e i n a r g e r ð: Notkun mótorvéla hér á landi, bæði í þarfir sjávarútvegsins og annarar slarf- rækslu, vex mjög ört. Er það stórfé, sem ísl. greiða árlega fyrir vinnu á smíði mótorvéla lil erlendra manna. Hér eru nú svo miklir kunnáttumenn um mó- lorsmíði, að þeir munu fullfærir um smíði mótorvéla. Væri það þjóðþrifafyr- irtæki að fá innlenda mótorverksmiðju og myndi i)æla úr atvinnuleysi á þeim stað, þar sem verksmiðjan yrði sett. Hins vegar mun óráðlegt að ráðasl í slíka framkvæmd, nema að áður hafi farið fram fullnægjandi rannsókn um stofnkostnað og starfrækslu. Við því má og búast, að þessi iðnaður þyrfti nokRra vernd eða stuðning í fyrstu. Á það má og benda, að verksmiðja þessi ætti einnig að geta levst al’ bendi smíði sláttuvéla, rakstrarvéla og annara véla i þarfir landbúnaðarins. Dragnólavciðar. (Frsm. M. Guðmunds- son). Svohlj. tillaga samþ. með 3 atkv. gegn 2. Þrir fulltrúar greiddu ekki atkv.: »Fjórðungsþing Vestfjarða skorar á næsta Alþingi, að afnema nú þegar heim- ild þá, sem nú er i lögum, sem veitir einstökum héruðum rétt til að banna dragnótaveiðar hjá sér í fjörðum og íló- um. Greinargerð: Það mun almennt viðurkennt að vél- bátaútvegurinn liefur ekki borið sig und- anfarið, og hinsvegar er það einnig vist, að aukning þorskveiðanna er mjög vafa- söm, vegna markaðsörðugleika. Aftur á móti er sala ílatíiskjar mjög auðveld, og' hefur gefið mikið fé í aðra hönd til þeirra sem stundað hafa þessa veiði með kunn- áttu (með dragnót). Er því algerlega ó- viðunandi, að einstök héruð skuli geta lokað fyrir þessa veiðiaðferð, þar sem einnig eru mjög litlar líkur til, að drag- nótaveiði spilli nokkuð annari veiði, en bins vegar mikil þörf á, sem fjölbreytt- ustum veiðiaðferðum og, að útvegurinn beri sig betur. Hafnarbœlur. (Frsm. Arngr. Fr. Bjarna- son). Svoblj. tillaga samþ. í einu bljóði: Fjíirðungsþingið mælir eindregið með fyrirhuguðum liafnarbótum í Súganda- firði. G r e i n a r g e r ð : Súgfirðingar eru í vanda staddir með vélbátaílota sinn, sökum bafnleysis. Þar er því sérstök þörf bafnarbóta, ef útveg- ur á ekki að falla niður, og aðgerðir að- kallandi. Þyrfli rannsókn og undirbún- ingur að hefjast þegar á næsta sumri. Þess má gela, að Súgfirðingar eiga nú 8 þúsund kr. í lendingarsjóði, sem þeir eru reiðubúnir að verja i þessu skyni. Netaverksmiðja. (Frmsm. Arngr. Fr. Bjarnason). Svohlj. tillaga samþ. i einu bljóði: »Þar sem fyrirsjáanlegt er, að netaút- gerð íslendinga muni mikið vaxa á næstu árum, skorar fjórðungsþingið á Alþingi, að styðja stofnun innlendrar netaverk- smiðju, helzt svo, að verksmiðjan gæti tekið til starfa á næsla ári«. Skipasmíðar. (Frsm. Arngr. Fr. Bjarna- son). Svohlj. tillaga samþ. í einu hljóði: »Fjórðungsþingið skorar á Alþingi, að létla af tolli á öllum efnivörum til skipa- smíða og sluðla bæði á þann veg og annan að þvi, að smíði ílestra skipa fari fram innanlands. Jafnframt telur fjórðungsþingið nauð- syn bera til, að nú þegar verði lögfest- ar reglur um styrkleika og útbúnað skipa, smærri og stærri.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.