Ægir - 01.11.1935, Qupperneq 9
Æ G I R
235
auðveldán liátt, telur fjórðungsþingið
sjálfsagt, að horfið verði að verulegri
Iækkun innlánsvaxta í öllum peninga-
stofnunum landsins«.
Verndun veiðimiða. (Frsm. Helgi Ein-
son).
Svohlj. tillaga samj). í einu hljóði:
»Fjórðungsþingið beinir því til allra
formanna, að slæging fiskjar á veiðimið-
um spillir áþreifanlega veiði, og að því
þurfi samtök um, að engin slæging fari
fram á venjulegum veiðimiðum.
Felur fjórðungsþingið fulltrúunum að
hreyfa máli þessu í deildunum, að af-
loknu fjórðungsþingi, og vinna að sam-
tökum í þessu«.
Námsskeið. (Frsm. Helgi Einarsson).
Svohlj. tillaga frá Eiríki Einarssyni,
samþ. með samhljóða atkv.:
»Fjórðungsþingið telur nauðsynlegt, að
l)reytt verði lögum um vélgæzlu á mót-
orskipum, þannig að námsskeið þau sem
Fiskifélagið lætur halda, veiti tvenns-
konar réttindi, þannig, að minna prófið
veiti réttindi til vélgæzlu, allt að 50 hk,
enda séu þar minni prófkröfur gerðar.
Fjölþœltari fiskveiðar. Svohlj. tillaga
frá fyrri nefnd samþ. í einu .hljóði:
»Eftir því sem þrengist meira um xnark-
aði fyrir saltaðan fisk, sen) lil þessa og
enn er aðalframleiðsluvara okkar, er
það aðkallandi nauðsyn að veiðiskapur
okkar sé sem fjölþættastur og verðmest-
ur. Lýsir fjórðungsþingið ánægju sinni
yfir þeirn framkvæmdum, sem þegar eru
hafnar um fjölþættari veiði og hagnýt-
ingu hennar. Má þar í fyrstu röð nefna
karfaveiðar og ufsa, senr líklegar eru til
að geta geíið mikið verðmæti. Þá má og
nefna veiði á kampalampa (Rejer), sem
einnig mætti veiða með góðum árangri,
eftir því sem tilraunir sýna.
Þar sem veiði þessi er enn á lilrauna-
stigi, telur nefndin ekki rétt að sam-
þykkja tillögur um veiði þessa, en treyst-
ir því, að þessum tilraunum og öðrum,
sem líklegar eru til arðs, verði haldið
áfram«.
Breyting á lögum um atvinnu við sigl-
ingar. (Svohlj. tillaga frá Eiríki Einars-
syni, samþ. með samhljóða atkv.:
»Fjórðungsþingið mælir með þeim
breytingum á lögum, um atvinnu við
siglingar frá 1922, sem skipstjórafélagið
Bylgjan, lagði til, að gerðar yrðu í síð-
astliðnum maímánuði:
1. Að aukin verði kennsla við smá-
skipapróf það mikið, sem þar um
fróðir menn telja nauðsynlegl, til
þessaðgeta fært'fiskiskip við strend-
ur íslands, og að aukin verði rétt-
indi þeirra manna þannig, að þeír
fái rétt til skipstjórnar og stýri-
mennsku á fiskiskipum, allt að 200
tonnum við strendur landsins.
2. Að þeir, sem hafa verið skipstjórar
og stýrimenn á skipum allt að 60
riimlestum í minnst 5 ár, áður en
breyting þessi öðlast gildi, og eigi
hlekkst á í skipstjórn yfir þann tíma,
öðlist sömu réttindi.
3. Ennfremuy leggjum vér til, að 1.
málsgrein 3. gr. laga, um atvinnu
við siglingar, hljóði þannig: Próf
það, er um getur i 7. gr., skal tekið
í Reykjavík, Vestmannaeyjum, Seyð-
isfirði, Akureyri, Siglufirði og ísa-
firði, og skal prófið lialdið ár hvert
þegar næg þátttaka fæst«.
Starfsfé fjórðunganna. Svohlj. tillaga
frá fyrri nefnd samþ. í einu liljóði:
»Fjórðungsþ. skorar'fastlega á stjórn
Fiskifélags íslands, að greiða fjórðung-
unum sama starfsfé og verið hefir og
eins og það er ákveðið í 14. lið fjár-
hagsáætlunar síðasta Fiskiþings.
Þó getur íjórðungsþingið til vara fall-
ist á, að gjaldliðir áætlunar Fiskifélags