Ægir - 01.11.1935, Qupperneq 10
236
Æ G I R
íslands 1935—’36, 4.—17., lækki allir um
10%, ei' þörf er á, þó ekki 6. gjaldliður,
sú lækkun myndi vega móti lækkun
þeirri, sem varð á tillagi Alþingis lil
Fiskifélagsins.
Fái fjórðungarnir ekkert starfsfé myndi
það valda afturkipp í starfsemi íiskideild-
anna.
Fjórðungsþingið telur og ósanngjarnl
og óréttmætt, að 16. gjaldliður sé felld-
ur niður, því ílestar hinna smærri styrk-
veitinga hafa unnið mikið gagn.
Þá var samþykkt eftirfarandi
F.j árhagsáætlun
fyrir fjórðiingssaniband Vesttjarða.
T e k j u r:
1. Eftirstöðvar frá fvrra ári ....... lcr. 440.01
2. Starfsfé frá Fiskifélagi íslands... 1000.00
Kr. 1440.01
(1 j ö 1 d :
1. Til fiskd. Dýrafj. námsskeiðsk.... kr. 100.00
2. '141 fiskid. Bolv. til sundnáms... 200.00
3. Til fiskid. Hvöt Flateyri til sundn. — 100.00
4. Til fiskid. ísafjarðar til sundn. — 300.00
5. Til fiskid. Súgfirðinga,......... — 100.00
0. 't'il fiskid. Framtíðin................ 100.00
7. Til fiskid. Vikingur til iendingab. . 100.90
8. Fjórðungsþingskostnaður ............... 300.00
9. Oviss útgjöld..................... — 140.01
. lvr. 1440.01
Aths. 1. -7, gjaldliður greiðist því að
eins, að Fiskifélagið greiði lillag það,
sem ljórðungunum voru ákveðin afsíð-
asta Fiskiþingi.
(Þess skal getið, að í hyrjun þingsins
skiftu lulltrúar sér í tvær nefndir. í 1.
nefnd: Arngr. Fr. Bjarnason, Olafur Guð-
mundsson, Jón Krisjánsson og Helgi Ein-
arsson, en í 2. nefnd: Kristján Jónsson,
Magnús Guðmundsson, Sigurður Fr. Ein-
arsson og Eiríkur Einarsson).
Loks fór fram stjórnarkosning. Forseti
var kosinn Arngr. Fr. Bjarnason, ritari
Kristján Jónsson, háðir með 6 samhlj.
atkv. Varaíörseti Haraldur Guðmunds-
son og vararitari Jón Kristjánsson, háð-
ir i einu hlj.
Samþykkt var að lialda næsta fjórð-
ungsþing á ísafirði.
Sagði forseti því næst fjórðungsþing-
inu slitið, hinn 9. oklóber kl. 11 árd.
Arngr. Fr. Bjarnason, Kristján Jónsson,
Jón Kristjánssor, Iíclgi Einarsson,
Sigurður Fr. Einarsson, Magnús Giiðinundsson.
Olafur Guðnuindsson, Eirikur Einasson.
Söluhorfur fyrir íslenzkan fisk
í Suður-Ameríku.
Eins og áður er gelið í Ægi, fór Tlior
’fhors alþingismaður í markaðsleit til
Suður-Ameríku og hafði stjórn Sölusam-
bands ísl. liskframleiðenda, kosið liann
tii þeirrar farar.
Hinn 27. ágúsl sl. lagði hann héðan
af stað og kom aftur hinu 15. nóvem-
her. Hann fór sem leið liggur lil Argen-
tína og dvaldi hálfsmánaðartima í Buen-
os Aires og hafði þar tal af helztu fisk-
kaupmönnum og skýrði þeim frá fram-
leiðslu Islendinga, sem þeim mun hafa
hafa verið lítl kunn, og sagði þeim, að
íslendingar væru staðráðuir í að ryðja
sér rúm á markaði þeirra, þar sem það
hefði sýnt sig, að vegna vöruvöndunar
og gæða, hefði íslenzki fiskurinn náð
öruggri fótfestu á hverjum markaðinum
á fætur öðrum, þótt ötlugir keppinautar
hefðu verið fyrir.
Flestir kaupmenn voru vantrúaðir á
vörugæðin og llestir þeirra höfðu þegar
keypt nægan fisk til næstu mánaða, af
gömlum viðskiftamönnnm, en þó gat
Thors lengið þá til að kaupa um 3000
kassa af fiski, sem senda skal í nóvem-
ber og desember og má nefna það sýn-