Ægir - 01.11.1935, Blaðsíða 19
Æ G I R
245
Síldveiðin til 23. nóv. 1935.
Saltað tn. Matjes tn. Kryddað tn. Sykurs. tn, Sérverk. tn. Samtals tn. í bræðslu hektolitrar
Vestfiröir og Strandir . . . 14 656 * 3 277 787 82 18 802 91 080
Siglufjörður 23 498 1 121 12918 1 945 1 349 40 831 293 755
Eyjafj. Húsav. og Raufarli. 15 492 4 660 1 419 75 437 22 083 163 078
Austfirðir » » » » » » 1 828
Sunulendingafjórðungur. . 19 938 1 671 10 693 1 692 16 699 50 693 »
Sanitals 23. nóv. 1935 73 584 7 452 28 307 4 499 18 567 132 409 549 741
Lokaskýrsla 22. sept. 1934 87 839 71 023 31 455 7 209 19 234 216 760 686 72«
Lokaskýrsla 9. sei>t. 1933 71 820 109 728 21166 3 234 13 098 219 046 751 225
verið gerð hingað lil Stjórnarráðsins frá
firma einu í Manchester um það, livorl
þessar plöntur, einkum fjörugrösin, sé
að fá hér og gerir ráð fyrir, að þau
munu vera sérstaklega góð hér, þar sem
þau vaxi úti í miðju Atlantshafinu. Býst
það við að gela tekið við eins mildu af
þessum »grösum«, eins og menn mundu
geta aflað hér og gerir ráð fyrir að geta
greitt 20 pd. sterling fyrir tonnið affull-
verkuðum, ósortéruðum grösunum, foh.
á næstu höfn.
Viðvikjandi öflun og verkun grasanna
gefur firmað nokkurar bendingar, sem
eru næsta einfaldar. Þau má tína (reita),
líkt og söl og ef til vill bezt að bregða
á þau hnífi, svo að ýmis óhreinindi, sem
sitja oft neðst á leggnum, verði eftir, en
])ess l>er að gæta, að grösin séu vel hrein
og skoluð af þeim i fjörupollum öll þau
óhreinindi, sem við þau geta loðað. Svo
eru þau breidd út til bleikingar og þerris,
líkt og söl eða þang (til eldsnevtis) og þeg-
ar þau eru fullþur, iná láta þau í hreina
poka og þau svo send á staðinn, þar
sem gengið er frá þeim (pressuð saman í
hæfilega l)agga, »balla«) til útflutnings.
Stj'órn Fiskifélagsins vill hér með leiða
athygli manna í Vestmanneyjum, áStokks-
eyri og svo út i kringum Suðurkjálk-
ann, á Innnesjum og á Snæléllsnesi, í
kringum Jökulinn, og jafnvel í hinum
ytri Bréiðafjarðareyjum að þessu máli,
og væntir þess, að einhverir, sem standa
vel að vígi með þesskonar grasasöfnun,
vilji gera tilraun, sem gæti skorið lir
þvi, hvort takast inætti að framleiða góða
vöru, sem með timanum ætti að geta
gefið þeim, sem vildu leggjastund á slika
atvinnu, dálaglegar aukatekjur. Börn 9
—12 ára ættu, undir eftirliti fullorðins
manns, að vera vel fær um að vinna
að þessari grasátínslu, sem mundi fara
fram síðari hluta sumars.
Viðvikjandi frekari upplýsingum gela
menn snúið sér lil skrifstofu Fiskifélags
íslands.
Ofviðri
gerði mikið fyrir Vestur- og Norður-
landi, aðfaran. 26. nóv. og fylgdi þvi mik-
ið brim. A Sandi brotnuðu bátar, sömu-
leiðis i Bolungavik og þar er sagt að
brimbrjótur hafi laskast. Á Blönduósi
gekk sjór yfir bryggju og vörupall og
skpluðust út vörur, sem þar biðu skips-
ferðar, svo sem kjöt og gærur o. II. Þar
skemmdusl einníg bátar. Á Skagaströnd
hentust bátar til, en skemmdust lítið.
Vindur var norðvestan.