Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1935, Blaðsíða 4

Ægir - 01.12.1935, Blaðsíða 4
254 Æ G I R ast fyrir, ef þess er gælt, að breiða fisk- inn á grúfu. eftir að hann er orðinn hæfilega þur fyrir Norðurspán. Þessa þarf að gæta enn hetur við pækilsalt- aðan fisk, sem þarf meiri þurk en hinn staílasaltaði. Sveinn Arnason. Dýpi á Hafnarfjarðarhöfn árið 1778. Árið 1776, sendi stjórn hinnar konung- legu islenzku verzlunar, skonnortu liing- að til lands með vörur. Skipstjóri var E. H. Minor. Áður en hann lagði í ]>á ferð, var fyrir hann lagt, að mæla d)7pi sjávar við strendur íslands á eins stóru svæði og hann kæmist yfir um sumarið og búa til sjókort með binu mælda dýpi. Skipstjóri Minor mun hafa verið mjög vel að séf í þessari grein, því korl þau, sem eftir liann liggja, eru snildarverk. Hann byrjaði mælingar í maí, eftir að skip hans var affermt og hélt þvi verki áfram þar til í byrjun september. Næsta áf (1777) hélt hann mælingum áfram, eftir að hann hafði flutt hingað vörur og nolaði tímann á vetrum, eftir liann kom til Iíaupmannahafnar, til að teikna og ganga frá kortunum. Vorið 1878 kom skipstjóri Minor með vörur til Hafnarfjarðar, eins og árin á undan og átti að lialda mælingum á- fram um sumarið, en þá vildi það slys lil, að liann drukknaði í Hafnaríirði, hinn 17. maí 1778. Við fráfall hans voru aðrar ráðstafanir gerðar um ferðir skips- ins, sem í stað sjómælinga, hélt vöru- flutningum áfram um sumarið. Mæling- ar lögðust niður er kunnáttumaðurinn var fallinn frá og um sjómælingar heyrð- íst svo ekkert, þar lil 18. ágúst 1786, er konungur lofar, að þeim skuli haldið á- fram. Væri Suðurland að sökkva í sjó, mætti ætla, að á ílóum og fjörðum, )7rði dýpi smám saman meira og verður því lekið upp dýpi á Hafnarfjarðarlegu, eins og það var árið 1778 og væri innan hand- ar að mæla það nú, til að fá saman- burð, hvort grynnir eða dýpkar. Hafnarfjörður að Hvaleyrarhöfða að sunnan og að Bala að norðan. Frá læknum fyrir sunnan Flensborg, bein lína að lnisi kaupmanns Ferdinand Hansens. Dýpi árið 1778, miðað við stór- streymisfjöru, grynnst við grandaendann l'/o faðmur, en 2 faðmar milli lians og fjöruborðs fyrir neðan Flensborg. Áður- nefnd lína liggur um innri stórskipalegu og er jafndýpi allt upp undir land að norðan, 3 og 4 faðmar, hvergi grynnra. Fyrir innán þessa línu er sama dýpi þar til kemur fáa faðma frá landi, en þar er það syðst, fram undan Flens- I)org að Hamrinum, ll/2 faðmur og síð- an 2—3 faðmar, allan hringinn að Fiska- kletti, örfáa faðma frá stórstreymisfjöru- borði; virðist hér um marbakka að ræða, sem þó var horfinn 1870. Dýpið fram með ströndinni að norð- an, frá Fiskaklelti að Langeyri er frá 3 til 47s faðmur. í línu frá Hvaleyrarhöfða að Langeyri, er minnst dýpi 2 faðmar, rétt við höfðann og mest 8 faðmar í miðjum firði, annars 5—6—7. Fyrir innan síðastnefnda línu var slór- skipalegan »Huggert Reeden« og dýpi þar 7—8 faðmar og var á miðjum firði í línu frá Langeyri á Hvaleyrarbæ. Sundið, sem fara mátti um á smáskip- um, milli Helgaskers og Hvaleyrarhöfða er dýpst (1778) 37» faðmur og 2 faðm- ar við sjálft skerið.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.