Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1935, Blaðsíða 11

Ægir - 01.12.1935, Blaðsíða 11
Æ G I R 261 Mannskaðar og’ eignatjón, Laugardaginn 14. desember var hér gott veður fram eftir deginum og mun svo víða hafa verið hér á landi, þvi hæði voru menn á sjó og ferðalagi á landi, í erindum sínum, fé var á beit og dagurinn líkur öðrum dögum, þar til ofsaveður hrast á með snjókomu og var það engu vægara hér syðra, en liið eftir- minnilega »Halaveður«, sem svo er hér al- mennt nefnt, 8. febrúar 1925. Fyrir vest- an hrast veðrið á fyrri parl dags en hér á Suðurlandi skall rokið á kl. milli 3—4e.h. í þessu veðri fórust menn, hæði á sjó og landi. Nóttina milli laugardags og sunnudags hélzt sama veðurhæðin og sunnudag 15. des. var stórviðri á norð- an, en vægara þó enn um nóttina. Yegna símaslita fréttist ekkert nema frá stöku stað, en síðari hluta sunnudags og á mánudaginn fóru hinar sorglegu aíleið- ingar stormsins að berast til Reykjavík- ur, og verða þær taldar hér á eftir. Akranesbáturinn »Kjartan Ólafsson«, fórst í þessu veðri og var hans mikið leitað. Á hátnum voru 4 menn: Jón Ólafsson skipstjóri, giftur og 3 hörn uppkomin. Sonur hans Alexander 17 ára. Georg Sigurðsson verkamaður, áttikonu og 4 börn. Þorvaldur Einarsson ógiftur, 18 ára. Báturinn var eign Þórðar Ásmunds- sonar. Á Vestmannaeyjahöfn hvolfdí léttháti; í voru tveir menn og drukknaði annar þeirra, Guðm. Guðmundsson að nafni. Aðfaranótt sunnudags var togarinn Sviði frá Hafnarfirði á leið til Aðalvíkur af fiskimiðum. Sjór gekk þá yfir skijoið og tók út einn hásetann, Magnús Guð- mundsson, Reykjavíkurvegi 29 í Hafnar- firði. Magnús var um þrítugt, var kvænt- ur og álli 2 börn. Tveir bátar frá Sauðárkróki lorust. Á þeim voru sjö menn. Bátarnir hétu Aldan og Njörður. Leitarmenn frá Sauð- árkróki fundu lik allra skipverja af Öld- unni rekin undan Óslandshökkum. Á Öldunni voru þessir menn: Bjarni Sigurðs- son form., kvæntur og átti 4 hörn, Björn Sigmundsson, kvæntur, barnlaus, Ás- grímur Guðmundsson, hóndi í Fagranesi, og Magnús Hálfdánarson, háðir ókvæntir. Ýmiskonar hrak úr Nirði hefir fundist rekið á Borgarsandi. Þessir menn voru á Nirði, og voru allir ungir og ókvæntir: Sigurjón Pétursson form., Margeir Bene- diktsson og Sveinn Þorvaldsson. Helgi Gunnarsson, hóndi frá Fagra- nesi fór frá Sauðárkrókí skömmu áður en veðrið skall á og ætlaði heim lil sin, en þangað var stutt leið. Helgi lenti í hríðinni og hefur ekki komið fram. — Hannes Benediktsson í Hvammkoti, lagði á laugardaginn af stað frá Heiði í Göngu- skörðum og ætlaði yfir Laxárdalsheiði, en ekkert hefur spurst til hans síðan. Tveir bátar fórust á Breiðafirði. Var annar háturinn frá Ytra-Felli á Fells- strönd og hinn frá Elliðaey. Á bátnum frá Ytra-Felli voru: Valgeir bóndi, mað- ur um sextugt, er lætur eftir sig ekkju sem var ein heima. Með Valgeiri voru tveir uppeldiss}mir hans, Ólafur Jónsson og Guðmundur Magnússon. Á Elliðaeyjarbátnum voru Jón Breið- fjörð Nielsson, kvæntur og átti 2 hörn, og Davíð Daviðsson frá Dældarkoti í Helgafellssveit, sem lætur eftir sig konu og tvö hörn, kornung. Á föstudag fór hátur frá Arnórsstöð- um á Barðaströud að Hallsteinsnesi. Bát- urinn hefur enn ekki komið fram. Á honum voru tveir menn.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.