Ægir - 01.07.1936, Page 5
Æ G I R
147
Tillög’ur
um rannsóknarferð varðskipsins
»Þór« í júní—ágúst 1936.
I. Inngang'ur.
Fyrir nokkrum dögum sendi ég hr.
útgerðarstjóra Pálma Löftssyni lista yfir
þann útbúnað, sem Þór þyrfti að hafa
til þessarar ferðar. Með þessum tillögum
fylgja:
1. Kort nr. 147 (Grænlandshaf).
2. Kort nr. 239 (Island og Færöerne).
3. Tvö »kortform«, annað yfir svæði
úr Grænlandshafi (merkt á 147), en
hitl yíir svæði við austurhorn lands-
ins (merkt á 239).
II. Störfin sem fyrir lig'g’ja.
1. Það þarf að mæla nákvæmlega upp
tvö svæði, annað í Grænlandshafi á milli
Vestfjarða og Grænlands (sjá kort 147
og »Kortform« merkt Grænlandsliaf) og
hitt á djúpmiðum suður af Hornafirði
(sjá kort 239 og »kortform« merkt At-
lants haf). Tilgangur þessara mælinga er,
að leita að óþektum fiskigrynnum, sem
síðar mættu verða að notum.
2. A leiðinni frá Snæfellsnesjökli að
svæðinu, sem mæla skal í Grænlands-
hafl, og þaðan meðfram Norður- og Aust-
urlandi, þarf að hafa fastan mann við
hergmálsdýptarmælinn og færa dýpið,
sem hann sýnir, inn í bækur eins og það
er lesið, ca. einu sinni á minútu. Finn-
ist á þennan hátt ný grynni, skal reynt
að finna stærð þeirra og takmörk.
3. Mæla þarf yfirliorðshita að minnsta
kosti einu sinni á vöku, en hita á ýmsu
dýpi, á þeim fimm stöðum, sem merkt-
ir eru með ferhyrning á fyrirhugaðri leið
skipsins, á 5 m. dýpi, 10 m., 25 m., 75
ui., 100 m., 150 m., 200 m., 300 m., 400
m., o. s. frv. eins og dýpið eða vírarnir
í sjótökuáhaldinu endast til.
4. Svifi skal safna í yfirborði á þeim
slöðum, sem merktir eru með hring, eða
eins mörgum þeirra og hægt er. Draga
skal með 65 m. vír og ekki hraðar en
2 srn. á ldst.
5. Toga skal með þorskbotnvörpu ca.
5 klst. (miðað við þann tíma, sem varp-
an er í botni) á hentugum stað á svæð-
inu, sem mælt verður út af Vestfjörðum,
og auk þess skal gera tilraunir með
þorskhotnvörpu á þeim grynnmn, sem
kunna að flnnast við Norður- eða Aust-
urland, eða á mælda svæðinu suður af
Hornafirði. Loks væri æskilegt, að gerð-
ur væri einn eða örfáir drættir við Kol-
beinsey (sjá kort 239). Með sildarbotn-
vörpu þarf að toga eina til tvær klst. á
svæðinu, sem merkt er með Y fyrir sunn-
an Snæfellsnesjökul, á kortinu nr. 147,
ca. 5 klst. í Mýrabugt og ca. 5 klst. í
Meðallandshugt (sjá kort nr. 239). Nota
skal stóru sildarbotnvörpuna (90f.)nema
ef hún bilar, þá hinar til vara. Tilraun-
ir með síldarbotnvörpu skulu gerðar á
mjög grunnu vatni, og eigi dýpra en á
ca. 100 m. Ef tími vinnst til, eða ef leit-
að yrði hlés undir landi vegna stonna,
væri æskilegast að gera drætti með þorsk-
eða síldarbotnvörpu á grunnsævi, við
Norður- eða Austurlandið, ef til vill inni
á fjörðum.
6. Leggja þarf ca. 200 öngla haukalóð
og ca. 500 öngla smáönglalóð, að minnsta
kosti 2var sinnum á svæðinu, merkt aa
í Grænlandshafi (kort 147), og annars-
staðar í höllum, þar sem finnast kunna
ný grunn.
III. Högun ferðarinnar.
Þar sem nú fer að nálgast sólstöður
og sumargotssíld fer allt hvað líður að
hrygna, væri æskilegt að hyrja á því, að