Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1936, Blaðsíða 21

Ægir - 01.07.1936, Blaðsíða 21
Æ G I R 163 Fáeinir stærri vélbátar gengu hér í vetur og vor, fyrir Suður- og Vesturlaudi. Mun aflafengur þeirra hafa verið svip- aður og sunnlenzku skipanna. Þessi skip lögðu afla sinn á land syðra, og er mér ekki kunnugt um, liver hann hefur orð- ið á skip hvert. Tvö línuveiðagufaskip héðan af Ak- ureyri, Jarlinu og Ólafur, voru gerð út til Suðurlandsins. Ætlast var til, að þau yrðu ca. 3V2 mánuð að veiðum, en þau hættu eftir ca. 2 mánuði. Annað skipið fékk um 90 skpd., hitt um 300 skpd. — Hafa þau siðan legið um kyrt fram að síldveiðum. — Eitt skip gerði tilraun til hákarlaveiða, en fékk ekkert, svo þann- Jg er allt á sömu hókina læii lijá okkur Norðlendingum með útgerðina, á liðnum vetri og vori. Um einstakar veiðistöðvar er þetta að Hvcimmstangi: Þar er nú engin útgerð, nema til heimanotkunar. Skagaströnd: Enn sem komið er, er þar engin útgerð til þorskveiða, sem teljandi er, og vafasamt hvort hún verð- ur nokkur, sérstaklega ef síldarsöltun yrði þar mikil á sumrinu, sem frekar er húist við. Sauðárkrókur og Skagi að austan: Fað, sem aflast hefir á þessu tímabili, hefur verið sell í sveitirnar, að minnsta kosti hefi ég engan afla fengið gefinn þaðan upp í salt. Þar eru nú 6 trillu- hátar, sem um getur verið að ræða, að gangi eitthvað síðar. Veltur það nokkuð á, hve mikil atvinna þar verð- Ur við sildarsöltun í sumar og svo eðli- ’ega á fiskigöngum. Talið er, að þorsk- veiðar verði stundaðar eitthvað, seinni- Part sumarsins, ef síld yrði lítil og fisk- Ur fyrir. Höfðaströndin: Þar eru 11 trilluhát- ar. en að hve miklu leyti þeir hafa gengið hl veiða í vor, er mér ekki kunnugt, en enginn aíli er þar gefinn upp á skýrsl- um til júniloka. Sennilega hefur allinn farið til sveitamanna, enda munu fáir stunda þar róðra, nema sem auka- atvinnu. Siglufjörður: Þar er nú nokkuð með öðru sníði en að undanförnu, þar sem einir 3 vélhátar eru taldir hafa stundað þaðan veiði, og þó aðeins lítinn tíma, þvi enginn afli er þar talinn fram, síðan 1. júní, en þá er hann talin ein 50 skp. Ólafsfjörður: Á þessu tímabili hafa gengið þaðan flest, 10 vélbátar og 27 trillubátar. Er aílinn talinn alls til júní- loka, 1238 skp. Dalvík og Upsaströnd: Þar eru 14 vél- hátar og 5 trillubátar, en ekki hafa vél- bátarnir, að einum undanteknum, stund- að róðra, síðan um mánaðarmót maí og júní og trillubátarnir mjög stopult. Afl- inn þar á sama tíma talinn að vera 382 skp. Hríseg: Þaðan hafa gengið tlest 10 vél- hátar og þó aðeins stuttan tíma, sem sjá má á því, að aflinn lil júníloka er ein- ungis 272 skjD. Árskógsströnd: Þaðan hafa gengið 2 vél- hátar, stöðugt að meslu og 11 trillubátar. Aflinn gefinn upp 335 skp. Hjaltegri og grend: Mikill hluti aflans þar, einkum í vor, var seldur hingað í bæinn til neyzlu, en að öðru leyti er þar talinn afli i salt á þessum tíma, 42 skp. — 4 trillubátar og eitthvað af árahátum, — með köflum, — hafa gengið þaðan. Akuregri: Tvö línuveiðaskip hafa lagt hér upp afla sinn, sem áður er getið, og auk þess hafa 6 trillubátar saltað í igrip- um, svo allur afli í salt er ca. 425 skp. Grgtubakkahreppur: Þaðan hafa róðrar verið einna stöðugastir. Gengið að jafn- aði 5 vélbátar og 3 trillur að mestu. — Þar er aflinn talinn að vera, 68l skp. í júnílokin.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.