Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1936, Blaðsíða 12

Ægir - 01.07.1936, Blaðsíða 12
154 Æ G I R Ný geymsluaðferð á síld. Búast má við mikilli breytingu á síld- arverzlun, þegar geymsluaðferð á nýrri síld, sem fyrir skömmu er farið að reyna, verður almennt tekin í notkun. Vísinda- menn við Torry fiskirannsóknastöðina i Aberdeen, hafa haft rannsóknir með liönd- um, er miðuðu að, hvernig auðið væri að geyma nýveidda sild, langan tíma, án þess hún skemmdist og hefur þeim tek- ist að geyma hana þannig í 5 mánuði og reyndist hún, eftir þann tíma, eins og hún kom úr sjónum og mátti þá gera við hana hvað sem menn vildu, hvort heldur borða hana nýja, salta eða reykja. Fram að þessu, hefur það verið trú manna, að vegna íitunnar, væri ekki auðið að geyma síld í kælihúsum, svo ekki skemmdist. Að vísu má lengigeyma síld, í frysti, sem nota á til beitu, en til matar hefur hún hingað til reynst óhæf; aftur á móti má lengi geyma þorsk og flatfisk í frystihúsum svo ekki saki. Yms- ar tilraunir hafa áður verið gerðar til þess að geyma nýja síld, svo hæf væri til neyzlu, en hingað til hefur það ekki tekist. Nú er svo langt komið með til- raunir og teikningar, að verkið, sem eft- ir er, verður í höndum vélasmiðanna, því verki hinna snjöllu vísindamanna, má heita lokið. Til þess að sildin geymist, eins og til er ætlast, er kuldinn i geymsluklefum hafður miklu meiri en áður hefur verið, þegar síld hefur verið geymd í kælilnis- um og geti vélfræðingarnir framleitl það frost í þeim, sem þarf, án þess að kostn- aður fari fram úr húfi, þá á síldveiðin góða framtíð fyrir sér. Þá er minni hætla á, að ofmikið berist á markað og minna yrði kastað i sjóinn af veiddri sild og fiskimenn mundu bera meira úr býtum, fyrir erfiði sitt. Slíkum frystihúsum, mætti dreifa á hina helztu staði, þar sem síld er lögð á land og gæti þá almenningur fengið n5rja síld til matar allt árið. Eins og nú hagar til, veiðisl lílið af síld við Skotland og England á tímabil- inu, frá miðjum janúar, þar til í maílok og þann tíma fá fisksalar aðllutta síld frá Noregi, en almenningur kýs nýja síld daglega og þegar hún er ekki fá- anleg, verður annað að koma í staðinn, en við það minnkar áhugi manna fyrir hinni ágætu fæðutegund, og afleiðing verður, minni sala. Um þessar mundir er einnig unnið að endurbótum á reyk- ingaraðferð á síld og fylgja flesl sildar- verzlunarfyrirtæki, tilraunum i þá átt, með alhygli og vænta hins bezta árang- urs. (Daily Mail 22. júni 1936). Samningur við Rússland. Siðari hluta júnímánaðar stóðu vfir samningar, að Rússár keyptu 10 þúsund tunnur af saltsíld frá Lerwick, fyrir 2iS shilling hverja tunnú, og átti öll síldin að hafa verið söltuð, fyrir 15. júlí. Síldarsölunefndin á Peterheadsvæðinu, hefur fyrirskipað, að frá deginum 22. júní, megi reknetagufuskip auka neta- fjölda sinn upp í 70 net, og mótorbátar, sem reknetaveiðar stunda, hafa 63 net hver; gildir þetta fyrir Peterheadbátana. Til þess að koma í veg lýrir, að miður góð síld komi í netin, hefur nefndin beð- ið skipstjóra á síldveiðiskipunum, að kasta ekki netunum fyrir sunnan stefn- una, aust-suðaustur frá Peterhead. Skip, sem bregða út af þessu, mega lniast við, að ýmsir örðugleikar geti framkomið við sölu síldar þeirra, og það jafnvel, þótl skortur sé á sild á markaðinum. (Scotsman 22/u 1936.)

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.