Ægir - 01.06.1937, Síða 3
Æ G I R
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS
30. árg.
Reykjavík — Júní 1937
Nr. (5
Guðmundur Jónsson
skipstjóri.
Hinn 14. þ. m. átli Guðm. Jónsson 25
ára skipstjóraafmæli og hafði liann all-
an þann tíma verið óslitið skipstjóri á
togurum og mun það eins dæmi um svo
ungan mann, þvi hann er aðeins 47 ára,
fæddur 14. júni 1890, og var því aðeins
22 ára er hann tók við skipstjórn, en
áður hafði hann verið háseti á íiskiskút-
um hér og stýrimaður á togurum. Hann
fór um fermingaraldur að stunda fisk-
veiðar og féll honum svo vel við þann
starfa, að hann með þreki og dugnaði
náði því marki, er hann hafði áselt sér,
að ráða fyrir skipi. Um langt skeið hefir
Guðmundur verið með aflasælustu for-
mönnum landsins og þakka sumir það
el'tirtekt hans og glöggskyggni á fiskimið-
um og alla tilhögun veiðarfæra. Mnn
þetta vera arfgengt, því faðir hans og
forfeður í háðum ættum, þeir Engeyjar-
og Hlíðarhúsamenn voru formenn góð-
ir og miklir sjósóknarar. Þótt Guðm.
hafi gengið vel að afla og eigi hent nein
slys á sjóferðum sinum, þá hefir hann
eins og að líkindum lætur á þessu 25
ára tímabili komizt slundum í hann
krappann í fangbrögðunum við Ægi og
er honum þó ein nóttin minnisstæðust,
erskip hans Skallagrímur næstum hvolfdi
bér í flóanum í ofsaveðri haustið 192C.
Lá skipið á hliðinni svo möstur námu
Guðm. Jónsson
við sjó um langan tíma, þar lil Guðm.
tókst með aðsloð skípshafnarinnar að
rétta svo skipið, að hann komst til hafn-
ar í Reykjavik.
Er líklegt að Guðmundur hafi þá lnigs-
að líkt og Grettir forðum, er hann kvað
vísu þessa:
Stöndum upp, þó al undir alllíðum skip ríði; . .
Heppnaðist svo vel að rétta við skip-
ið og ausa það, að enginn maður varð
fyrir meiðslum eða fjörtjóni.
A síðastliðnu ári réðist Guðm. í það
stórræði ásaml ileiri áhugamönnum að