Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1937, Page 4

Ægir - 01.06.1937, Page 4
122 Æ G I R stofna félag til togaraveiða. Keyptu þeir togarann Reykjaborg, sem cr stærsti og bezt útbúni togari landsins (um 700 smál.) Er skipið útbúið með ðllum nýjustu tækjum til fiskveiða og i síðastliðnum febrúarmánuði voru settar í skipið fiski- mjöls- og lýsisvinnsluvélar í Þýzkalandi. Hafa vélar þessar reynzt vel á síðastlið- inni vertíð og gefa því góðar vonir um ágætan árangur er stundir líða. Nú er Guðm. farinn með skipi sínu »Re3Tkja- borg« til sildveiða við Norðurland og er áformað að láta vélarnar vinna mjöl og lýsi úr síldinni umborð jöfnum höndum sem hann leggursíld á land, ef veiði verður sæmileg. Mun það i fyrsta sinn í fiski- sögunni, að skip bræði síld á liafi úti við íslandsstrendur. Eg vil með línum þessum þakka binum dáðrika og dug- andi skipstjóra Guðmundi Jónssyni fyrir liið ágæta starf hans í þágu sjómanna- stéttarinnar og alþjóðar og óska þess jafnframt að honum megi vel vegna og blessast fyrirtæki sín. G. Síldveiðin byrjuð. Síðan íslendingar byrjuðu að reka síldveiðar befir aldrei verið liafður eins mikill viðl)únaður vegna þeirra hluta eins nú í vor, enda inunu aldrei hafa sést jafnmörg íslenzk skip á síldarmið- unum eins og verða munu j)ar á jiessu sumri. Þess mátli sjá glögg dæmi á höfninni í Reykjavík nú á dögunum, að lilli gullleiti fiskurinn myndi ekki langt undan, því að hvarvetna sem lilið var sáust skip við bryggjurnar og hafnar- garðinn, er verið var að útbúa til veiða. Allt fas og svipur fiskimannanna gaf einkar vel lil kynna bvað væri í aðsigi. »Hefurðu heyrt hvort hún sé komin, hefurðu nokkuð frélt af henni?« spurðu fiskimennirnir hver annan og það var svarað um hæl, eftir þvi sem vitneskja var fyrir hendi, án þess að inna á nokk- urn hátt eftir því, hver þessi hún væri, því það vissu allir. Og einn daginn var það á allra vörum, að nú væri hún komin, skipin héldu hvert á eftir öðru i norðurátt, og hvaðanæfa á veiðisvæð- inu heyrðist skipunin: „Yt sundiir!“ Lognværmiðsumarsnóttinbreiddiþoku- lagða á Reykjahyrnu og Spákonufell, en út þröngu norðlenzku firðina lagði blá- leita reykjarslæðu frá verksmiðjunum, sem biðu eftir því að bræða síldina, er fór í vöðum fyrir norðurströnd landsins. Síldveiði íslendinga hefir stóraukizt undanfarandi ár og síldariðnaðurinn hefir fært svo stórkosllega út kviarnar á örstöttum tíma, að fyrir einum áratug mundi fáa hafa órað fyrir sliku. Arið 1911 reisir norskur maður, að nafni Thormod Bakkevig, fyrstu síldar- verksmiðjuna hér á landi. Þessi verk- smiðja gat unnið úr 150 málum á sólar- hring. Tuttugu og sjö árum síðar geta íslendingar brætt í sínum eigin síldar- verksmiðjum rúm 20000 mál á sólar- hring. Ilinn öri vöxtur síldarútvegsins gefur ótvírætt bendingu um það, að fiskiðn- aðurinn geti í framtiðinni veitt þúsund- um manna atvinnu, ef þjóðin leggst öll á sömu sveif til átaks og áhrifa. Það dylst engum, sem tekið hefir þátt i síldveiðum, að þar sé um að ræða einhverja léttavinnu, og eflaust er það þessvegna, að menn eru sífellt að leitast við að finna ráð lil þess að draga úr erfiðinu. Reynslan er eflaust notadrýgsti kennarinn bæði á joessu sviði sem öðrum. Margir fiskimenn stunda enn síldveið- ar, er böfðu joá þrælavinnu, að kasta nótinni með höndunum. Sú vinnuaðferð var fyrir allra hluta sakir mjög illtæk.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.