Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1937, Page 6

Ægir - 01.06.1937, Page 6
124 Æ G I R um 200 mál á sólarhring. Þetta er i fyrsta skifti, svo vitað sé, að síld er brædd um borð i islenzku skipi og er vonandi að þessi stórmerkilega nýjung heppnist vel. Verksmiðjan á Djúpuvik hefir verið stækkuð og umhætt svo mikið nú í vor, að hún getur unnið úr helmingi meiri síld nú en siðastliðið ár. í sumar eiga níu togarar auk línuveiðagufuskipa að veiða handa verksmiðjunni. Ný verksmiðja heflr verið reist á Hjall- eyri og á hún að geta unnið úr rúmum 5000 málum á sólarhring. Þrettán tog- arar, firnrn línuveiðagufuskip og nokkrir vélbátar ciga að veiða fyrir Hjalteyrar og Hesteyrarverksmiðjurnar. Síldarverksmiðjur ríkisins hafa verið umbættar mikið nú í velur og vor og munu þær geta unnið úr talsvert meiri síld en siðastliðið sumar. Þá hafa verið reistar nýjar verk- smiðjur í Ilúsavik og við Ingólfsfjörð. Sóll)akkaverksmiðjan bræddi eingöngu karfa síðaslliðið ár, en í sumar á hún að vinna úr síld og eru þegar ráðnir þangað þrir togarar. Allar þær verksmiðjur, sem unnu úr síld í fyrra sumar og ekki hafa verið nefnd- ar hér að framan, niunu verða starfrækt- ar á síldarvertíðinni, sem nú erað byrja. Það hefir oft verið haft orð á þvi, að síldveiðarnar væru sótlar af meira kappi og dirfð en góðu hófi gengdi. Sérstak- lega hefir verið henl á það, að sum linu- veiðagufuskipin og vélbálarnir væru stundum svo ofhlaðin, að ekkert mælti úl af bregða svo að líf skipverja væri ekki i stórhættu. Því miður hefir þessi áburður við þau sannindi að styðjasl, að ekki verður móti mælt, og þess vegria verður að krefjast þess, að engum verði látið líðast að tefla öryggi og lííi fiski- mannanna í hætlu vegna ofhleðslu eða annara viðráðanlegra hluta. Það er ljótur siður að lála háseta vera i nótabátunum, þegar skipið er á ferð, en þvi miður tíðkast það meira en þörf gerisl og virðist stundum tyllt á tæpuslu nöf, að eigi hljótist af því stórslys. íslenzka sjómannastéttin er dugleg og stórhuga, en svo má ekki lcappið vera mikið, að ekki sé fyllilega skevtt um alla varúð og forsjá. Vertíðin við Lofóten 1937 Þótt grein þessi eigi aðallega að fjalla um fiskveiðarnar við Lofólcn á síðustu vertíð, þá er þó freistandi að minnast örlítið á skýrslu þá, sem norska fiski- málastjórnin hefir njdega sent frá sér og snertir eingöngu útgerðina við Lofóten 1936. Eins og mönnum mun kunnugt, var mikið allaleysi við Lofóten síðastl. ár og varð að flytja mikinn fjölda af fiski- mönnum lieim á koslnað ríkisins. Er það mál manna, er bezl þekkja til, að fiski- mennirnir hafi sjaldan orðið að búa við bágari kjör í þessum verstöðvum en einmitt vertíðina 1936. Fiskimálastjórnin norska sendi, þá á ver- tiðinni, mann norður til Lofóten, í þeim erindagjörðum að leiðbeina útgerðar- mönnum og fiskimönnum við að fylla út skýrslur, er fiskimálastjórnin hafði látið útbúa í þvi augnamiði, að fá ná- kvæmt yfirlit vfir rekstur hvers einstaks báts. Þar sem hér var um hyrjunarstarf að ræða, reyndist erfitl að fá nákvæml rekstraryfirlit, nema frá mjög fáum bátum, þegar miðað er við þá bátamergð, er stundar veiðar í Lofóten. Alls var safnað sanian áreiðanlegum rekstrarreikningum frá 136 bátum og höfðu 50 af þeim slundað netaveiðar, 19 lóðaveiðar og 37 haldfæraveiðar. Þegar rekstrarreikning-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.