Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.1941, Qupperneq 21

Ægir - 01.07.1941, Qupperneq 21
Æ G I R 191 Dýrafjörður. Einn vélb. stundar handfæraveiðar þaðan og hefir aflað vel, en smábátaaflinn á þær 12 trillur, er þaðan stunda veiðar, flestar með handfæri, hefir verið í tæpu meðallagi. Tvö skip frá Þingeyri hafa lengstum verið við ís- fiskflutninga í vetur og vor, en stunda nú síld- veiði. Nýlega hefir eitt 160 rúml. skip bætzt við flotann á Þingeyri, en það er skonnortan „Hamóna“, sem Anton Proppé keypti í vetur frá Ameríku. Hefir skip þetta farið eina ferð með ísfisk til Englands. Arnarfjörður. Þaðan hafa gengið til veiða í vor 6 og 7 þil- bátar og 12 trillubátar. Hafa bátar þessir yfir- leitt aflað vel eftir því sem um cr að ræða á þessum slóðum. Megnið af aflanum hefir verið lagður í liraðfrystihúsið á Bíldudal, nokkuð selt í ísfiskflutningaskip og örlítið saltað. — Sex þiljaðir vélbátar frá Bildudal stunda nú dragnótaveiðar og hafa aflað sæmilega upp á síðkastið. Tálknafjörður. Þaðan gengu 8 vélbátar i vor og öfluðu á- gætlega framan af. Talsvert af aflanum var saltað, en nokkuð selt i ísfiskflutningaskip og hraðfrystihúsið á Patreksfirði. Einn vélb. frá Suðureyri stundar dragnótaveiðar í sumar. I’atreksfjörður. Stóru vélbátarnir þar byrjuðu veiðar í marzmánuði, en hinir minni upp úr páskum og um sumarmál. Úr verzlunarstaðnum hafa gengið til veiða 7 þilfarsbátar og 12—15 opnir vélb. Góðfiski hefir yfirleitt verið á þessum slóðum og einkum var ágætur afli á smábát- ana framan af vori. Nokkuð af aflanum hefir verið saltað, en mikið látið í hraðfrystihúsið, og síðari hluta vors var talsvert selt í isfisk- flutningaskip. Hæstur vorhlutur á stóru bát- ana er sagður nema um 2 500 kr., en opnu vélbátarnir höfðu sumir náð um 2 000 kr. hlut í júlíbyrjun. —■ Síðan í vor hafa 3—4 þilfars- bátar stundað dragnótaveiðar og tveir þeirra að staðaldri. Um miðjan júlí hafði vélb. „Fylk- ir“ aflað fyrir 36 þús. kr„ og mun þá hafa verið aflahæstur þeirra báta í Vestfirðinga- fjórðungi, er dragnótaveiðar stunda. Víkur. Þar hefir verið ágæt veiði í vor og aflahlutir orðið óvenju góðir. Hafa Víkurmenn oft getað komið afla sinum í ísfiskflutningaskip og því fengið fyrir hann ágætt verð. Þeir hafa þó saltað allmikið og selt nokkuð í hraðfrysti- húsið á Patreksfirði. Bátur einn úr Breiðuvik hafði um miðjan júli fengið um 3 000 kr. til hlutar, og var hann aflahæstur af þeim bát- urn, er veiðar stunda úr Víkum. Fréttir úr verstöðvunum. . 31. júlí 1941. Góðar gæftir voru þar í júnímánuði. Fleiri bátar stunda nú dragnótaveiðar þar en nokkru sinni áður. Veiðisvið þeirra er innan við tund- urduflasvæðið, og geta þeir því veitt óhindrað ®f þeim orsökum. Mjög fáir þiljaðir vélbátar stunda nú veiðar með lóðum, enda geta þeir ekki sótt til veiða á sín venjulegu mið, vegna tundurduflalagna á þeim slóðum. Sumir þess- ara báta hafa því farið til Norðurlands, eink- uiu Þórshafnar, og stunda veiðar þaðan. Síld hefir sama og eklcert veiðst eystra, aðeins ör- Htið i stauranætur, en þó hvergi nærri til þess að fullnægja beituþörfinni. Á það meðal ann- ars sinn þátt í því, hve lítið þiljaðir vélbátar hafa stundað línuveiðar. — Opnir vélbátar stunda aðallega veiðar með línu og nota mest skelfisk til beitu (kúskel og krækling). Á und- anförnum árum hafa þessir bátar stundað mjög mikið veiðar með handfæri, en í sumar hefir þessi veiði að miklu leyti brugðizt fyrir Austfjörðum. — Megnið af aflanum hefir verið selt í ísfiskflutningaskip, og hefir oftast verið nægur færeyskur skipakostur i stærstu veiði- stöðvunum, en aftur á móti hafa hinar smærri veiðistöðvar, þar sem einvörðungu eru opnir vélbátar, orðið út undan i þessu efni. Hefir það orðið þess valdandi, að veiði er þar minni en ella myndi. Salt er af skornum skammti og mjög dýrt, og eru menn því hikandi að veiða fisk í salt. Vestmannaeyjar. Þar hefir verið mjög sæmileg veiði síðustu viku mánaðarins. Hafa sumir hátanna aflað upp undir 10 smál. á tiltölulega skömmum tíma, eftir því sem um er að ræða að sumrinu til á þessum slóðum. Mikið af aflanum hefir

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.