Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1954, Síða 12

Ægir - 01.04.1954, Síða 12
74 Æ G I R Frá Lófót. Engar rannsóknir eru fyrir hendi um styrkleika árganganna frá þessum tíma. Hins vegar er um slíkt að ræða á árunum 1925—1930, þegar aflinn jókst álíka mikið og hratt og hann liafði áður minnkað. Það er því hægt að skýra, hvers vegna sú aukn- ing átti sér stað. Árgangarnir frá 1917—1919 eru mjög sterkir, og það eru þeir, sem bera uppi hina miklu veiði 1925—30. Eftir 1930 minnkar veiðin hins vegar stórlega og nær lágmarki 1935 og 1936, en þá var Lófótafl- inn 55 þús. smál. fyrra árið, en 53 þús. smál. hið siðara. En þegar árgangarnir 1929—30 komu í notin, jókst veiðin á nýjan leik, og náði liámarki 1939, en þá varð þorskaflinn 115 þús. smál. Hið óeðilega ástand, sem varð á styrjaldarárunum orsakar það, að ekki er unnt að ætla á um, hve aflinn hefði orðið mikill þá, ef veiðarnar hefðu verið stund- aðar með venjulegum hætti. Fyrstu tvö árin eftir styrjöldina jókst veiðin aftur, en það var einkum að þakka árganginum frá 1937, sem er sá sterkasti, er Norðmenn kunna deili á. En þar sem árgangarnir á undan og eftir honum (1938—1940) voru óvanalega smáir, mátti vænta þess, að veiðin við Lófót minnkaði verulega á næstunni. Að aflinn 1951 varð 116 smál. var ekki eingöngu því að þakka, að þá var veitt með þorsknót, heldur jafnframt hinu, að þá gætti tveggja tiltölulega góðra árganga (1941—1942). Þegar menn saka þorsknótina um afla- tregðuna tvö siðastl. ár, þá verður að ætlast til þess, að menn skýri, hvernig slikt má vera. Hefði aflinn aukizt við tilkomu nótar- innar, tvöfaldazt eða þrefaldazt, hefði að vissu leyti mátt álykta svo, að gengið væri of nærri stofninum. En þannig er þessu ekki varið. Sumir álykta, að nótin trufli fiskinn, þegar hann er að hrygna og af þeirri ástæðu klekjist minna út en ella. Ef þetta styddist

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.