Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1954, Side 28

Ægir - 01.04.1954, Side 28
90 Æ G I R vegna endurnýjunar og eðlilegrar aukningar fiskibátaflolans nieð bátasmíði innanlands.“ Henni fylgdi svo hljóðandi greinargerð: „Fiskveiðasjóður íslands hefur miklu hlutverki að gegna með þjóð vorri. Er að- slaða hans til stofnalána á vegum sjávar- útvegsins hliðstæð því hlutverki, sem Bún- aðarbankinn, eða nánar til tekið stofnlána- deildir hans inna af hendi í þágu landbún- aðarins. Fjárþörf sjávarútvegsins á þessu sviði er eðlilega mikil. Er Fiskveiðasjóði ætlað að geta sinnt stofnlánaþörf þeirri, sem fyrir hendi er á hverjum tima til bátabygginga og bátakaupa, svo að vel sé séð fyrir endur- nýjum og aukningu fiskibátaflotans og báta, sem nota þarf til flutninga með ströndum fram. Þá er Fiskveiðasjóði einnig ætlað að sinna stofnlánaþörf til byggingar iðnfyrirtækja í sambandi við fiskveiðar og enn fremur til byggingar dráttarbrauta. Þá eru og uppi raddir og kröfur um það, að starfsemi sjóðs- ins sé enn færð út að því er snertir lán til verbúða, útgerðarhúsa o. fl. Þó að því sé sleppt, að bætt yrði við nýjum verkefnum i lánastarfsemi sjóðsins, sein þó er vissu- lega mikil þörf fyrir, skortir mjög á um það, að Fiskveiðasjóður hafi því fjármagni yfir að ráða, að hann geti sinnt hlutverki sínu eins og það er markað í lögum sjóðsins. Fiskveiðasjóður mun nú hafa yfir að ráða lil starfsemi sinnar um 60 millj. kr., sem allt er sjálfseignarfé sjóðsins, og er sú upphæð öll bundin í útlánum eða ráðstafað í því augnamiði. Árlegar tekjur sjóðsins, vaxta- tekjur og hluti af útflutningsgjaldi, munu varla hrökkva til þess að sjá fyrir lánaþörf til viðhalds fiskibátaflotans og fiskiðju- vera. Vantar sjóðinn því alveg fé til þess að geta mætt lánaþörfinni til endurnýjunar og aukningar flotans, svo að eigi sé fleira talið. Nú liggja fyrir hjá sjóðnum umsóknir um lán til bvggingar og kaupa á 22 fiski- bátum af venjulegri stærð auk umsókna um lán til byggingar smærri báta með eða án þilfars. Hefur sjóðurinn eins og stendur ekkert fé til þess að sinna þessum lánbeiðn- um, en til þess eins, þótt annað sé ekki talið, þyrfti hann að hafa yfir að ráða um 15 millj. kr., og er þá við það miðað, að lánað sé 75% af kostnaðarverði hinna stærri báta. Á árunum 1950—53 varð mikil rýrnun í fiskibátaflotanum. Var á þeim árum ekkert hægt að aðhafast til þess að fylla í þau skörð, sem þá voru í hann höggvin. Á s. 1. ári voru aftur á móti keyptir og byggðir allmargir fiskibátar, en svo var rýrnunin mikil orðin á undanförnum árum, að enn skortir mikið á, að úr sé bætt. Er því sízt að undra, þótt eftirspurn stofnlána til bátabygginga sé rnikil. Þá er og ör þróun í fiskiðnaðinum, sem lcrefst aukins lánsfjár á því sviði, en úr því verður ekki heldur bætt að óbreyttum að- stæðum. Þörfin knýr því mjög fast á um það, að gerð verði gangskör að því að afla fiskveiða- sjóði lánsfjár, og þá einkum í sambandi við endurnýjun og aukningu fiskibátaflotans. Það mál krefst skjótra aðgerða. Fyrir hendi eru nú tæplega önnur úrræði til þess að koma þessu í kring en að afla Fiskveiðasjóði lánsfjár, en lánsfé er nú ekki heldur auðfengið, sizt til langs tíma. En þess er þó að vænta, að ríkisstjórninni mætti takast að útvega Fiskveiðasjóði nauðsynlegt viðbótarfé til nota samkvæmt því, sem að framan segir. Eins og fyrr er að vikið, starfar Fiskveiða- sjóður nú eingöngu með eigið l'é. Þetta gerir honum kleift að lána fé með vægum vaxta- kjörum. Er það mikill styrkur fyrir sjóð- inn, að fjármálum hans er svona liáttað, þegar hann færi að taka lán til starfsemi sinnar máske með hærri vöxtum en sjóður- inn tekur af fyrsta veðréttar lánum. Ætti hann því að minnsta kosti fyrst um sinn ekki að þurfa að hækka útlánsvexti sína, þó að hann tæki nokkurt lán til starfsem- innar, en árlegar vaxtatekjur sjóðsins mundu að sjálfsögðu geta minnkað nokkuð af þessum sökum. Síðan stofnlánadeild Landsbankans hætti útlánastarfsemi sinni til skipabygginga og fiskiðjuvera, en hún var á sínum tíma stofn- uð með 100 milljón króna framlagi frá spari-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.