Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1954, Síða 17

Ægir - 01.04.1954, Síða 17
Æ G I R 79 Undirbúningur aá Síðasta Alþingi samþykkti eftirfarandi þingsályktunartillögu um þetta efni. Þar sem hér er um mjög athyglisvert mál að ræða, þykir rétt að birta hér tillöguna og greinargerð þá, sem henni fylgdi. „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórn- ina að skipa tvo menn til þess að ræða við bæjaryfirvöld Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar um möguleika á því að byggja sem fyrst þurrkví, er rúmað geti 6 þúsund smá- lesta skip, en síðar mætti stækka svo, að hún tæki 18 þús. smál. skip, samkvæmt fram komnum tillögum nefndar, sem skip- uð var samkvæmt þingsályktun samþykktri á Alþingi 1951, til undirbúnings þessu máli, enda verði þegar tryggt með samningum hæfilegt landrými fyrir mannvirkið og skipulagning þess. Niðurstöður umræðnanna ásamt tillögum um framkvæmdir, staðarval og fjáröflun skulu sendar ríkisstjórninni fyrir 1. okt. u. k., en hún leggur þær síðan fyrir næsta Alþingi til afgreiðslu.“ Greinargerð. A Alþingi 1951 var samþykkt að fela ríkis- stjórninni að láta gera athugun á því, hvar á landinu væri hentugast og ódýrast að koma upp þurrkví til hreinsunar og við- gerðar á skipum, og láta að lokinni þeirri athugun semja kostnaðaráætlun um bygg- bigu þurrkvíar þar, sem hagkvæmast þætti uð koma henni upp. Skyldi miða við þurr- kvi, er tekið gæti 18 þús. smálesta skip, en jafnframt athuga kostnað við byggingu þurrkvíar, sem aðeins rúmaði 6 þús. smá- lesta skip. Eftir ýtarlega aihugun á mörgum stöðum á landinu komst nefnd sú, er ríkisstjórnin skipaði til að athuga og undirbúa þessi mál, samkvæmt framanritaðri samþykkt, að þeirri niðurstöðu, að um fjóra staði væri að ræða, er rannsaka þyrfti, áður en að hægt væri að gera tillögur um staðsetningu kví- arinnar. Þessir staðir voru: Vatnagarðar þurrkvfar. við Reykjavík, Hafnarfjörður, Njarðvíkur og Patreksfjörður. Nefnd, sem skipuð hafði verið af Alþingi 1943, til að gera tillögur um staðsetningu þurrkvíar, hafði áður at- hugað þessi mál og lagt til, að þurrkvíin yrði byggð rétt innan við Klepp, en við nán- ari athugun á botnlagi þar og dýpi kom í Ijós, að heppilegra mundi að koma kvínni fyrir nokkru utar við voginn en þá var gert ráð fyrir. Jafnskjótt og nefndin liafði komizt að þeirri niðurstöðu, er að framan greinir, réð hún verkfræðinga til þess að athuga bygg- ingarmöguleika á fjórum fyrrnefndum stöð- um og til þess jafnframt að gera kostnaðar- áætlun um byggingu þurrkvíar, ásamt teikn- ingum og verklýsingum. Þegar framanrit- aðar áætlanir höfðu verið gerðar, kom í ljós, að gerlegt var að koma fyrir þurrkví fyrir 6 þús. smálesta skip á öllum fyrrnefndum stöðum, og var kostnaður áætlaður sem hér segir: Á Patreksfirði 27.7 millj. kr., í Njarð- víkum 26.44 millj. kr., í Vatnagörðum 18.74 millj. og í Hafnarfirði 17.98 millj. En auk þessu lágu fyrir eldri áætlanir um bygg- ingu þurrkvíar fyrir 6 þús. smál. skip sem hér segir: Innan við Klepp fyrir 20.5 milj. kr. og í Reykjavikurhöfn fyrir 24.5 millj. Við þessar athuganir var upplýst, að engir stækkunarmöguleikar voru fyrir hendi á Patreksfirði, í Njarðvikum og í Reykjavík- urhöfn, og með því að bygging þurrkvíar fyrir 6 þús. smálesta skip var auk þess all- miklu dýrari á þessum stöðum en bæði í Vatnagörðum og i Hafnarfirði, þótti sýnt, að annar hvor þeirra staða kæmi aðeins til greina fyrir- hina væntanlegu þurrkví. Að fengnum þessum upplýsingum lét nefndin gera kostnaðaráætlun um byggingu þurr- kvíar fyrir 18 þús. smálesta skip, þannig að byggð yrði í fyrri áfanga þurrkví, er rúm- aði 6 þús. smálesta skip, en síðar mætti stækka fyrir 18 þús. smálesta skip. Var fyrri áfangi áætlaður kosta 22.62 millj. kr. í Hafn- firði, en 23.5 millj. við Vatnagarða, en síðari byggingu L

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.