Ægir - 15.08.1964, Qupperneq 4
246
ÆGIR
með handfæri. Gæftir hafa verið mjög ó-
hagstæðar og afli yfirleitt rýr. Aflinn á
tímabilinu er alls um 1000 lestir, þar af
er afli í dragnót um 730 lestir og afli í
humartroll um 220 lestir, afli handfæra-
bátanna var um 50 lestir.
Akranes: Þaðan hafa 10 bátar stundað
humarveiðar, gæftir hafa verið fremur
stirðar og afli í minnalagi. Aflinn á tíma-
bilinu varð 366 lestir, þar af voru 43 lest-
ir slitinn humar, alls voru farnar 56 sjó-
ferðir.
Rif: Þaðan hefir 1 bátur stundað hum-
arveiðar og er afli hans 22 lestir á tíma-
bilinu, þar af er um 40% humar.
Ólafsvík: Þaðan hafa 6 bátar stundað
dragnótaveiðar og 1 bátur humarveiðar.
Gæftir hafa verið fremur óhagstæðar. —
Afli dragnótabátanna var að jafnaði 3—4
lestir í róðri, og er alls á tímabilinu um
360, lestir, þar af er um 25% koli. Afli
humarbátsins hefir yfirleitt verið rýr eða
alls um 24 lestir, þar af var um 45%
humar.
Grundarfjörður: Þaðan hafa 2 bátar
stundað dragnótaveiðar. — Afli þeirra á
tímabilinu er um 110 lestir, þar af er um
25% koli.
Stykkishólmur: Þaðan hafa 2 bátar
stundað handfæraveiðar og 1 bátur hum-
arveiðar, einnig hafa nokkrir smáir þil-
farsbátar og trillubátar stundað hand-
færaveiðar, ef gefið hefir, en gæftir hafa
verið mjög stirðar og afli rýr, eða um 30
lestir hjá handfærabátunum, en um 20
lestir hjá humarbátunum.
VESTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
í júní 19 6 U
Smábátaútgerðin var almennt byrjuð í
júní, en aflabrögð voru yfirleitt ákaflega
rýr alls staðar í fjórðungnum, enda stop-
ular gæftir fyrst framan af. 110 bátar
stunduðu veiðar í fjórðungnum, og voru
langflestir þeirra með handfæri, eða 91,
5 voru með línu, 11 dragnót og 3 voru
byrjaðir humarveiðar. Er það í fyrsta
skipti, sem bátar frá Vestfjörðum stunda
humarveiðar og koma heim með aflann.
Heildarafli þessara 110 báta var 1051
lest, og er það nokkru minna, en á sama
tíma í fyrra. 33 bátar frá Vestfjörðum
stunda síldveiðar fyrir Norður og Austur-
landi á þessari síldarvertíð.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Patreksfjöröur: 5 bátar stunduðu drag-
nótaveiðar og 16 handfæraveiðar. Heild-
arafli dragnótabátanna var 31 lest, og var
Skúli Hjartarson aflahæstur með 12 lest-
ir. Heildarafli færabátanna var 92 lestir,
og var Hringur aflahæstur með 11 lestir
í 14 róðrum.
Tálknafjörður: 1 bátur stundaði drag-
nótaveiðar, 2 voru á handfærum og 1 bát-
ur var byrjaður humarveiðar. Heildar-
afli þeirra í mánuðinum var 30 lestir. —-
Aflahæstur var Höfrungur (dragnót) með
13 lestir.
Bíldudalur: Þar bárust á land 74 lestir
af 3 dragnótabátum og 4 færabátum. —
Mestan afla hafði Jörundur Bjarnason, 17
lestir.
Þingeyri: Á Þingeyri bárust á land 44
lestir af 5 bátum, sem allir stunduðu
færafiskirí.
Flateyri: 14 opnir vélbátar voru gerðir
út á handfæri frá Flateyri og einn 36
lesta bátur, og var heildarafli þeirra í
mánuðinum 161 lest. — Aflahæstur var
Bragi með 38 lestir, en af minni bátunum
var Vísir aflahæstur með 21 lest.
Suðureyri: 10 bátar stunduðu hand-
færaveiðar, 3 réru með línu og 1 bátur
var á dragnótaveiðum. Heildaraflinn 1
mánuðinum varð 110 lestir, og er það ná-
lega helmingi minni afli en á sama tíma
í fyrra. Aflahæstur var Kveldúlfur með
17 lestir í 8 róðrum.
Bolungavík: 20 bátar stunduðu hand-
færaveiðar, 2 réru með línu og 1 með
dragnót. Heildarafli þessara báta í mán-
uðinum var 261 lest, og var Húni afla-
hæstur með 33 lestir í 17 róðruni með
línu, en af færabátunum var Guðjón afla-
hæstur með 31 lest í 20 róðrum.