Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 7
Æ GIR
249
legt en fór versnandi, þegar leið á nótt-
ina.
16. júlí. S.l. sólarhring var aðalveiðin
í Glettinganesgrunni, en veðrið þar var
sæniilegt. 43 skip með 28.300 mál og tn.
tilkynntu afla til síldarleitarinnar.
17. júlí. Lítil síldveiði var s.l. sólar-
hi'ing. Síldarleitinni var tilkynnt um afla
26 skipa með 9720 mál og tunnur. 24 skip
fengu afla í norðanverðu Glettingarnes-
flaki 36-40 sjóm. úti, en 2 skip fengu
smáslatta í botni Seyðisfjarðardýpis. —
Þokubræla var á miðunum.
18. júlí. Vitað var um afla 28 skipa með
17.350 mál og tunnur. Síldin veiddist á
Tangaflaki í Norðfjarðardýpi og suður í
Reyðarfjarðardýpi. Veður var gott — SV
kaldi. Leitarskipið Pétur Thorsteinsson
tók góðar lóðningar NA af Kolbeinsey,
engin skip voru á þeim slóðum. Einnig
varð vart við nokkurt rauðátumagn N af
Kolbeinsey.
19. jMí. Samtals tilkynntu 32 skip um
afla sinn, 13.050 mál og tunnur af sömu
slóðum og áður. Síldin stóð dýpra. SV
áttin hafði vaxið nokkuð, svo og straum-
ui’inn og rifu nokkur skip nætur sínar
ni-a. af þessum sökum.
20. júlí. Bræla var á austursvæðunum
sk sólarhring og lítill afli. 11 skip tilkynntu
4000 tunnur af svipuðum slóðum og áður.
21. júlí. Pétur Thorsteinsson tók enn
lóðningar við Kolbeinsey. Var eitt skip á
leið þangað. Síld fannst í morgun á stóru
svæði 60-70 mílur A. af Langanesi og voru
slíipin byrjuð að kasta. Bræla var suður
nieð Austfjörðum. Var einungis vitað um
af!a 6 skipa með 3.900 mál og tunnur.
-®gir fann síld A. af Hvalbak. Veður var
slsemt á þeim slóðum. Leitarflugvél var
á lofti yfir miðum úti af Norðurlandi, en
varð einskis vör.
22. júlí. Veiði var lítil s.l. sólarhring.
yar vitað um afla þriggja skipa af svæð-
lnu A af Langanesi með 1800 tunnur.
Allmörg skip voru komin þangað í morg-
Un- Síldin er mjög dreifð yfir stórt svæði.
Virðist vera um sæmilegustu söltunarsíld
að ræða. Eystra var enn bræla, en veðnr
fór batnandi. Var einungis vitað um afla
þriggja skipa af svipuðum slóðum og áð-
ur með samtals 1100 mál og tunnur. —
Lóðningar þær sem getið var um frá Kol-
beinsey í fyrri skýrslum reyndust síli.
23. júlí. Dauft var yfir síldveiðunum
s.l. sólarhring. Sólarhringsafli 30 skipa
nam samtals um 14.900 tunnum. Veður
var ágætt á miðunum úti af Langanesi
og fengu 27 skip þar um 13.600 tunnur.
Síldin er góð til söltunar, en eitthvað
blönduð. Vitað var um afla þriggja skipa
við Hvalbak samtals 1300 tunnur. Veður
var þar orðið sæmilegt, SV-kaldi.
2U. júlí. Sólarhringsaflinn var 20.500
tunnur hjá 25 skipum. Af Langanessvæð-
inu var vitað um afla 15 skipa með um
1600 tunnur. Síldin hafði færzt utar og
sunnar (10° lengd) og orðin blandaðri
smærri síld. Vitað var um afla 10 skipa
með um 4.500 tunnur úr Reyðarfjarðar-
dýpi — um 40 mílur undan. Veður var
heldur rysjótt á öllu veiðisvæðinu.
25. júlí. Aðlaveiðisvæðið s.l. sólarhring
var djúpt af Dalatanga, 80—100 mílur.
Var vitað um afla 37 skipa með 18.670
mál og tunnur. Nokkur skip voru að veið-
um allt að 140 mílum frá Langanesi. Til-
kynntu 4 skip um afla sinn samtals 3.300
tunnur. Veður var gott.
26. júlí. S.l. sólarhring var vitað um 38
skip, sem fengu samtals 17.300 tunnur.
Veiðisvæðið var djúpt úti af Dalatanga.
27. júlí. Vitað var um 30 skip með 14,-
600 tunnur sem fengust á svipuðum slóð-
um og áður.
28. júlí. S.l. sólarhring fengu 22 skip
samtals 13.800 tunnur 110—140 mílur úti
af Gletting og Dalatanga. — Leiðinlegt
veður.
29. júlí. Aðeins vitað um 12 skip, sem
fengu 4200 tunnur 75 míiur A að N af
Langanesi. Slæmt veður.
30. júlí. Veiðisvæðið hefur nú færzt
norðar og var aðalveiðin s.l. sólarhring
75—80 sjóm. A af norðri frá Langanesi.
38 skip fengu rúml. 28.650 tunnur. 1 skip,