Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 8

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 8
250 ÆGIR Jörundur III fékk eitt mesta magn í einu kasti sem um getur,. 2800 tunnur. Sæmi- legt veður er nú á miðunum. 31. júlí. Lítið var kastað s.l. sólarhring vegna þess hve stygg síldin var og erfitt að ná henni. 26 skip fengu 22.550 tn. af góðri söltunarsíld 100 sjóm. austur af suðri frá Langanesi. Á miðunum var gott veður, en nær landi var bræla. 1. ágúst. Síldarleitinni var tilkynnt um afla 48 skipa með samtals 39.250 tunnur, sem veiddust 105—110 sjóm. A af norðri frá Langanesi. Veður fór versnandi. 2. ágúst. Bræla var á miðunum fyrir austan síðasta sólarhring og dauf síld- veiði. Aðeins 11 skip með 12.750 tunnur tilkynntu síldarleitinni um afla. 3. ágúst. 29 skip með 21.900 tunnur til- kynntu afla s.l. sólarhring, sem veiddist rúmlega 200 sjóm. austur frá Raufar- höfn. U. ágúst. Sæmilegt veður var á miðun- um s.l. sólarhring. Veiðisvæðið er nú mun dreifðara. 39 skip tilkynntu afla alls 33.- 150 tunnur, sem veiddust aðallega 230— 240 sjóm. frá Langanesi (68° norður og 8° vestur) og 120 mílur A hálft suður frá Langanesi. 2 skip tilkynntu afla 85 sjóm. norðaustur frá Raufarhöfn. 5. ágúst. Góð síldveiði var s.l. sólar- hring. 66 skip með alls 57.050 mál og tunnur tilkynntu afla 120—240 sjómílur austur frá Raufarhöfn. — Einnig fengu nokkur skip síld 70—80 sjóm. ANA frá Raufarhöfn. Veðrið var gott á miðunum. 6. ágúst. 23 skip með 11.600 mál og tunnur tilkynntu afla til síldarleitarinnar síðasta sólarhring. Veiðisvæðin voru tvö, 130 sjóm. ANA frá Dalatanga og 130 mílur austur frá Langanesi. Austan og norðaustan kaldi var á miðunum og slæmt veiðiveður. 7. ágúst. 30 skip með 21.500 mál og tunnur tilkynntu afla síðasta sólarhring, sem veiddist aðallega 80 sjómílur ANA frá Dalatanga. Sæmilegt veiðiveður var á miðunum. 8. ágúst. Veiðisvæðin voru á svipuðum slóðum og sólarhringinn áður um 60—80 sjóm. NA frá Dalatanga. — 31 skip með samtals 27.650 mál og tunnur tilkynntu afla s.l. sólarhring. Vikuskýrslur Vikan 5.—11. júlí Óhagstætt veður var í síðustu viku, en þrátt fyrir það var síldveiði sæmileg. Veiðisvæðið var á svipuðum slóðum og vikuna áður, þ.e. frá Glettinganesgrunni suður að Gerpisflaki. Vikuaflinn nam 156.256 málum og tunn- um og var þá heildarmagn á land komið 1.022.371 mál og tunnur, en var í lok sömu viku í fyrra 435.994 mál og tunnur. Aflinn hefur verið hagnýttur þannig: 1964 1963 1 salt upps. tn. 30.578 111.528 í bræöslu mál 974.914 310.646 í fryst. uppm. tn. 16.879 13.820 Vikan 12—18. júlí Vikuaflinn nam 217.499 málum tunnum, en var 72.710 mál og tn. á sama tíma í fyrra. Heildaraflamagnið var í vikulokin orðið 1.239.870 mál og tunnur samanborið við 508.704 mál og tunnur á sama tíma í fyrra. Aflinn hefur verið hagnýttur sem hér segir: 1964 1963 í salt uppsalt. tn. 73.851 170.626 í bræðslu mál 1.147.718 320.291 í frystingu uppin. tn. 18.301 17.787 Vikan 19.—25. júlí. Veiðiveður var yfirleitt rysjótt sl. viku. Síldveiðiflotinn var að veiðum úti af Austfjörðum á svipuðum slóðum og áður, þ.e. Norðfiarðar- og Reyðarfjarðardýpi- Vikuaflinn nam aðeins 55.356 málum og tunnum en var 48.247 mál og tn. á sama tíma í fyrra. — Heildaraflamagnið var i vikulokin orðið 1.295.226 mál og tunnur samanborið við 556.951 mál og tunnur á sama tíma í fyrra.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.