Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 14

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 14
256 ÆGIR ingu, sem hlýtur að leiða til skekkju í samkeppnisaðstöðunni innanlands við aðra atvinnuvegi og utanlands gagnvart sam- bærilegum fiskveiðum annarra þjóða, sem ekki njóta styrkja eða þá minni styrkja. Ég veit, að þetta er ákaflega erfitt að meta og ég get ekki sannað með tölum, að þetta sé svona, en ég leyfi mér þó að setja fram þessa staðhæfingu, sem mun vera nokkuð almennt viðurkennd. Ég held líka, að við hér á landi getum talað af nokkurri reynslu um áhrif styrkja til fisk- veiðanna, því um nær áratugsbil, fram til ársins 1960 voru hér á landi greiddir styrkir í margvíslegum myndum til sjáv- arútvegsins. Þessar styrkjagreiðslur, sem upphaflega voru hugsaðar sem alger bráðabirgðalausn á aðsteðjandi vandamál- um, stundum staðbundnum eða tímabundn- um, leystu oftast í bili úr vandamálunum, en reglan var hins vegar sú, að sífellt sköpuðust ný vandamál, jafnvel sem bein afleiðing af styrkveitingunum, og styrkja- kerfið vatt sífellt upp á sig. Okkar reynsla var sem sé sú, að styrkjakerfið reyndist eins og kvalastillandi lyf, sem sjúklingi er gefið í kvalaköstunum, það getur ekki læknað neitt mein, heldur aðeins linað kvalir, en svo kemur ekki ósjaldan fyrir, að sjúklingarnir verða svo háðir lyfinu, að þeir geta ekki án þess lifað og þá er al- vara á ferðum. Ég leyni því ekki, að af íslands hálfu veldur þessi þróun styrkjanna vaxandi áhyggjum, einmitt af því, sem að ofan seg- ir og eykur þau vandamál, sem fyrir eru viðskiptalegs eðlis og áður var minnzt á og sömuleiðis þann vanda, sem við sköpum okkur sjálfir með verðbólguþróun, sem hefur valdið sjávarútveginum vaxandi erf- iðleikum, einkum á síðasta og yfirstand- andi ári. Ég hef hér að framan freistað þess að gera grein fyrir nokkrum meginatriðum, sem þýðingu hafa, þegar reynt er að átta sig á stöðu íslenzkra fiskveiða í Evrópu og skal nú rifja upp það helzta, ef það mætti verða til að gera þessa nokkuð sund- urlausu þanka mína dálítið skýrari. 1. Hafsvæðið umhverfis ísland er frá náttúrunnar hendi eitt með hinum auð- ugri og á ég þá við allt það svæði, sem nefnt hefur verið landgrunn Islands og myndar eins og sökkul undir land- inu, þar sem útlínurnar fylgja all- greinilega útlínum strandlengjunnar. 2. íslenzkar fiskveiðar hafa sýnt mjög mikla aukningu á síðustu 50 árum og hefur aflamagnið á þessu tímabili meira en 18-faldast og er það mun meiri hlutfallsleg aukning en orðið hefur á rúmlestatölu fiskiskipaflot- ans á sama tíma, og meira en þekkist í nokkru öðru fiskveiðilandi í Evrópu. 3. Aðeins fáar þjóðir stunda nú veiðar við ísland að nokkru ráði, en íslenzkir fiskimenn taka nú um það bil 60% þess afla, sem alls er tekinn á hafsvæðinu umhverfis Island. Hefur hlutur íslend- inga farið vaxandi. 4. I Evrópu eru nú aðeins fjögur lönd, sem landa meiri afla en Island miðað við eitt ár, en það eru Sovétríkin, Nor- egur, Spánn og Bretland. 5. Afköst í íslenzkum fiskveiðum, sam- anborið við það, sem er í öðrum lönd- um Evrópu. virðist vera mikil, bæði miðað við tölu fiskimannanna og stærð fiskiskipaflotans. Hins vegar er verð- mæti aflans ekki að sama skapi mikið, sem stafar af því hversu hlutfallslega mikill hluti aflans fer til framleiðslu mjöls til skepnufóðurs og lýsis til iðn- aðar. 6. Yfirleitt er framleiðsla íslenzku fisk- veiðanna að langmestu leyti hálf- eða lítt unnar vörur, sem notaðar eru sem hráefni í matvælaiðnaði innflutnings- þjóðanna. Stafar þetta m. a. af því, að meiri áherzla hefur verið lögð á það að auka fiskiskipaflotann til þess þann- ig að auka aflamagnið en minni áherzla aftur lögð á uppbyggingu iðnaðar til fullvinnslu þess hráefnis, sem úr haf-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.