Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 27

Ægir - 15.08.1964, Blaðsíða 27
ÆGIR 269 mönnum geöjist ekki að þessari fæöutegund, fremur en gaddaháfnum. Sá fiskur er mjög eftir- sóttur í Englandi, Þýzkalandi, Hollandi og Frakklandi, en enginn NorÖmaður vill leggja hann sér til munns. (Norges Handels og Sjöfartstidende) Frá Svíþjóð Svíar nota mikið af djúpfrystum matvœlum. Djúpfrysting er aðeins tveggja áratuga gömul 1 Svíþjóö, en þróunin hefur veriö svo ör, aö Sví- ar eru nú meðal hinna fremstu í Evrópu á þessu sviði. Alls er um að ræða 41400 lestir, eöa ca. 5,5 kg á livern íbúa. I Bandaríkjunum er neyzlan 20 kg á íbúa, miðað við eitt ár. Eyrir 10 árum voru ekki nema 37 djúpfrystar vörutegundir í sænskiun matvöruverzlunum. I fyrra var orðið um að velja 140 tcgundir frá meira en 22000 verzlunum með kæliborð. Um síðustu áramót áttu yfir hálf milljón fjölskyldur kælikassa eða kæli- skáp. Neyzlan bygist á fáiun, en mjög stórum vöruflokkum. Þorskur, kjúklingar og spínat nema 'ini það bil 60% af heildameyzlu frystra vara. (Fiskets Gang). VIT AIUÁL I ---------------------------------------■<?> Nr. 1. Suðurströndin. Vestmannaeyjar. Grwnn í námunda viö Geirfuglasker (63°19’00” n.br., við Geirfuglasker. 20°30’07” v.lg.) hafa fundizt eftirfarandi grunn, sem merkt verða í sjókort: a) 39 m dýpi (P.A.) 2,1 sjóm. 197° frá Geir- fuglaskeri. b) 23 m dýpi (P.A.) 1,6 sjóm. 254° frá Geir- fuglaskeri. A stað b) varö vart við neðansjávareldgos síð- ustu daga desembermánaðar síðastliðins. Nr. 2. Norðurströndin. Sauðárkrókur. Bryggju- Ijós. StaÖur: 65°45’ nbr., 19°39’ v.lg. Bryggjuljósið á enda hafskipabryggjunnar á Sauðárkróki er stöðugt grænt ljós. Var áöur rautt. ■s,r. 3. Norðurströndin. Grunn tilkynnt norð-noró- austur af Langanesi. 30 m dýpi (P.A.) sé merkt í sjókort á eftirfar- audi stað: 66°54’ n.br., 13°45’ v.lg. Reglur um dragnótaveiði fyrir Norðurlandi Sjávarútvegsmálaráðuneytið hefur á- kveðið eftirfarandi breytingar á reglum þeim, sem settar hafa verið, um heimild til dragnótaveiða á tímabilinu 19. júní til 31. október 1964. Dragnótaveiðar skulu leyfðar fyrir Norðurlandi á svæðinu frá línu, sem hugsast dregin frá Veturmýrarnesi (utan Ingólfsfjarðar) um Selsker og áfram út í sömu stefnu, að línu réttvísandi norður frá Straumnesi austan Málmeyjarfjarðar (19°20’v.l.). Þó skulu dragnótaveiðar ó- heimilar á eftirtöldum svæðum: 1. Innanverðum Hrútafirði innan línu sem hugsast dregin frá Prestbakka- ey, þvert yfir fjörðinn að Mýrarnesi. 2. Innanverðum Miðfirði innan línu, sem hugsast dregin úr Stapa utan Hvammstanga í vestur þvert yfir fjörð- inn. 3. í Skagafirði innan línu, sem hugs- ast dregin í réttvísandi austur frá Reykja- disk að punktinum 65°53’0” norður breiddar og 19°38’4” vestur lengdar og þaðan í Hegranestá. 4. í Skagafirði innan línu, sem hugs- ast dregin frá Hellnanesi á Þórðarhöfða í kringlu í Málmey og úr norðurenda Málmeyjar í Stapa á Hrollaugshöfða. Bátum, sem skráðir eru og gerðir út frá verstöðvum í Skagafirði og Húnaflóa, verður einum veitt leyfi til veiða á þessu svæði, en hins vegar verða þeim ekki leyfðar dragnótaveiðar annars staðar innan fiskveiðilandhelginnar. Sjávarútvegsmálaráðuneytiö 10. júlí \196U.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.